Kosningar 2010
1 2 3 4 5 6 7 … 7 ›
Frambjóðendur tókust á í beinni Fulltrúar þeirra framboða í Reykjavík sem hafa verið að mælast með mann inni í könnunum fyrir komandi kosningar á morgun hittust í beinni útsendingu á Stöð 2 í kvöld. Þar var farið yfir helstu áherslur flokkanna og spáð í spilin um mögulegt samstarf að kosningum loknum. Innlent 28.5.2010 19:32
Segir skemmdarvarga tengda Samfylkingunni Mikil harka er hlaupin í kosningabaráttuna í Kópavogi. Kosningastjóri framsóknarflokksins sakar aðila tengda frambjóðanda Samfylkingarinnar um að hafa skemmt fjölda kosningaskilta á vegum flokksins í bænum. Frambjóðandinn segir ásakanirnar fásinnu. Innlent 28.5.2010 18:44
Veðja á Jón Gnarr Jón Gnarr verður næsti borgarstjóri í Reykjavík ef marka má spár þeirra sem veðja á vefsíðunni Betsson. Næstlíklegust þykja þau Hanna Birna Kristjánsdóttir og Dagur B. Eggertsson. Þá eru einhverjir sem spá því að næsti borgarstjóri komi ekki úr hópi þeirra sem bjóða sig fram til borgarstjórnar en langólíklegast þykir að Sóley Tómasdóttir verði borgarstjóri. Innlent 28.5.2010 18:28
Besti flokkurinn dalar - Sjálfstæðismenn í sókn Besti flokkurinn fær sex borgarfulltrúa ef kosningar á morgun verða í samræmi við nýja könnun sem Capacent gerði fyrir RÚV og sagt var frá í sexfréttum. Innlent 28.5.2010 18:17
Reykjavíkurframboðið kærir Stöð 2 til útvarpsréttarnefndar Reykjavíkurframboðið hefur lagt fram kæru á Stöð 2 til útvarpsréttarnefndar vegna brots á 9. grein útvarpslaga. Krafist er tafarlausrar úrlausnar útvarpsréttarnefndar með tilliti til sveitarstjórnarkosninganna á laugardaginn. Innlent 28.5.2010 13:42
Auðir seðlar flokkaðir sérstaklega Búist er við að einhverjir óánægðir kjósendur sýni þann hug í verki með auðum kjörseðli á morgun. Formaður yfirkjörstjórnar segir að auðir seðlar verði sérstaklega flokkaðir og taldir. Innlent 28.5.2010 12:31
Hasar í Kópavogi - Framsóknarskiltin eyðilögð Auglýsingaskilti Framsóknarflokksins í Kópvogi sem komið hafði verið fyrir víðsvegar um bæjarfélagið voru eyðilögð í nótt. Kosningastjóri framsóknarmanna segir að málið verði tilkynnt til lögreglu. Hann segir rangt að bæjarfulltrúi flokksins hafi misnotað aðstöðu sína. Innlent 28.5.2010 12:26
Oddviti Framsóknar lánaði sjálfum sér auglýsingaskilti „Sem vallarstjóri tekur hann og notar eigur bæjarins í sína prívat þágu," segir Lára Jóna Þorsteinsdóttir, kosningastjóri VG í Kópavogi, sem er allt annað enn sátt við Ómar Stefánsson, oddvita framsóknarmanna í Kópavogi. Hún segir að Ómar hafi tekið svokallaða búkka sem eru í eigu Kópavogsvallar og komið fyrir víðsvegar um bæinn með auglýsingum frá Framsóknarflokknum. Lára Jóna bendir á öðrum framboðum hafi ekki staðið slíkt til boða. Þetta hafi auk þess verið gert í trássi við ákvörðun byggingarfulltrúa bæjarfélagsins. Innlent 28.5.2010 11:32
Helmingur oddvitanna í Reykjavík hefur reykt hass Fjórir af átta oddvitum framboðanna sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningunum í Reykjavík hafa reykt hass. Einn þeirra hefur auk þess prófað kókaín. Þetta kemur fram í DV í dag. Innlent 28.5.2010 09:30
Sjöundi meirihlutinn sem fellur Bæjarstjórnarmeirihlutinn í Kópavogi er sjöundi meirihlutinn sem fellur, samkvæmt skoðanakönnunum Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. Bæði Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, sem mynda meirihlutann, tapa fylgi frá síðustu könnun, sem gerð var 8. apríl. Innlent 28.5.2010 08:11
Vonast eftir betri niðurstöðu í kosningunum „Þetta eru nú ákveðin vonbrigði. Ég stóð í þeirri trú að við myndum bæta við okkur jafnt og þétt. Ég hef stefnt að því allan tímann að ná hreinum meirihluta til að við getum staðið fyrir einhverjum alvöru breytingum í borginni,“ segir Jón Gnarr, efsti maður á lista Besta flokksins. Innlent 27.5.2010 22:50
D-listinn vinnur mann af Besta flokknum í borginni Stuðningur við Sjálfstæðis-flokkinn í Reykjavík hefur aukist síðustu vikuna, á meðan dregur úr fylgi Samfylkingarinnar og Besta flokksins, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2, sem gerð var í gærkvöldi. Innlent 27.5.2010 22:49
Steinunn Valdís segir af sér þingmennsku Steinunn Valdís Óskarsdóttir hefur ákveðið að segja af sér sem þingmaður Samfylkingarinnar í Reykjavík. Innlent 27.5.2010 17:34
Hreyfingin gagnrýnir Stöð 2 harðlega Þingmenn Hreyfingarinnar mótmæla harðlega vinnubrögðum Stöðvar 2 nú í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga en stöðin hyggst gera upp á milli framboða í Reykjavík með því að bjóða aðeins sumum framboðum að koma fram í umræðuþætti annað kvöld. Þetta kom fram í tilkynningu frá Hreyfingunni sem hún sendi frá sér fyrr í dag. Innlent 27.5.2010 16:22
Oddviti L-listans: Bíðum róleg „Við erum róleg og vitum að að leikurinn er ekki búinn fyrr en dómarinn flautar. Við bíðum því róleg eftir því hvað kemur upp úr kjörkössunum," segir Geir Kristinn Aðalsteinsson sem skipar fyrsta sæti á framboðslista L-listans, lista fólksins, á Akureyri. Innlent 27.5.2010 15:36
Stefnir í stórsigur L-listans á Akureyri L-listinn, listi fólksins, vinnur stórsigur í bæjarstjórnarkosningunum á Akureyri á laugardag og fær fimm bæjarfulltrúa af ellefu, samkvæmt könnun Capacent Gallup fyrir fréttamiðilinn Vikudag. Núverandi meirihlutaflokkar mælast með þrjá bæjarfulltrúa. Innlent 27.5.2010 14:43
Framboðsfundur í Hafnarfirði í kvöld Stjórnmálaflokkarnir sem bjóða fram til bæjarstjórnar í Hafnarfirði boða til sameiginlegs framboðsfundar í Hafnarborg í kvöld. Talsmenn flokkanna verða með framsögu og svara síðan fyrirspurnum áheyrenda í sal. Innlent 27.5.2010 11:34
Samfylkingin auglýsir mest Mikill munur er á auglýsingakostnaði stjórnmálaflokkanna vegna sveitarstjórnarkosninganna næstkomandi laugardag. Samfylkingin ver mestu fé en Framsóknarflokkurinn minnstu. Innlent 27.5.2010 10:35
Flestir vilja Hönnu Birnu í borgarstjórastólinn Flestir Reykvíkingar, eða rösklega 41 prósent, vilja að Hanna Birna Kristjánsdóttir verði áfram borgarstjóri, samkvæmt skoðanakönnun Morgunblaðsins. Heldur fleiri konur styðja Hönnu Birnu en karlar. Innlent 27.5.2010 07:04
Steinunn Valdís segi af sér Innan borgarstjórnarhóps Samfylkingar er mikið rætt um að Steinunn Valdís Óskarsdóttir, þingmaður flokksins, eigi að segja af sér þingmennsku, að sögn Hjálmars Sveinssonar, sem er í fjórða sæti listans. Innlent 26.5.2010 22:17
Segir keppinauta njóta forskots Fulltrúar C-listans í Grímsnes- og Grafningshreppi gagnrýna utankjörfundaratkvæðagreiðslu á Sólheimum í Grímsnesi í dag. Innlent 26.5.2010 22:17
Jón Gnarr gerir kröfu til borgarstjórastólsins Jón Gnarr gerir kröfu til þess að verða borgarstjóri Reykjavíkur, nái Besti flokkurinn mestu fylgi í komandi kosningum á laugardag. Þetta kom fram í umræðuþætti á Skjá einum í kvöld þar sem oddvitar framboðanna í Reykjavík tókust á. Innlent 26.5.2010 22:36
Lítil þátttaka í utankjörfundaratkvæðagreiðslu Nú eru þrír dagar í kosningar og aðeins hafa tæplega þrjú þúsund manns greitt atkvæði utan kjörfundar í Reykjavík. Kjörsóknin núna utan kjörfundar er helmingi minni en á sama tíma í síðustu sveitarstjórnarkosningum árið 2006. Innlent 26.5.2010 12:02
Þrír dagar til sveitastjórnakosninga - myndskeið Nú eru aðeins þrír dagar til sveitastjórnakosninga. Fréttamenn og myndatökumenn á fréttastofu Stöðvar 2 og Vísis hafa fylgst grannt með gangi mála. Nú þegar hafa þeir kynnt sér helstu strauma og stefnur í fimm af stærstu sveitarfélögum landsins og munu halda áfram að kynna sér málin allt fram á elleftu stundu. Innlent 26.5.2010 11:45
Besti flokkurinn með sjö fulltrúa Besti flokkurinn fær 43 prósenta fylgi og sjö fulltrúa í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt skoðanakönnun Morgunblaðsins. Vantar því aðeins einn fulltrúa á hreinan meirihluta. Innlent 26.5.2010 06:48
Óbreytt staða í Fjarðabyggð Meirihluti Fjarðalistans og Framsóknarflokks í Fjarðabyggð heldur í sveitarstjórnarkosningunum á laugardag, ef marka má niðurstöður skoðanakönnunar Fréttablaðsins og Stöðvar 2 sem gerð var í gærkvöldi. Innlent 25.5.2010 22:41
Kaupþing og Landsbankinn styrktu Gísla Martein um milljón Kaupþing og Landsbankinn styrktu Gísla Martein Baldursson, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins, um eina milljón króna fyrir prófkjör Sjálfstæðisflokksins í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna árið 2006. Þetta segir Gísli Marteinn í samtali við Vísi. Eins og DV hafði áður greint frá styrktu Baugur og FL Group Gísla Martein jafnframt um milljón hvor. Innlent 25.5.2010 11:35
Hefur ekki gefið sér tíma enn „Ég geri það á morgun eða hinn,“ sagði Gísli Marteinn Baldursson borgarfulltrúi í gær, spurður hvenær hann hyggst gefa upp nöfn þeirra fyrirtækja sem gáfu honum styrki fyrir borgarstjórnarkosningarnar 2006. Innlent 24.5.2010 22:09
Skýrsla um Álftanes eftir kosningar Ríkisendurskoðun segir að niðurstöður athugunar á fjárhagsstöðu sveitarfélagsins Álftanes muni ekki verða kynntar fyrr en um miðjan júní. Innlent 24.5.2010 22:09
Lúðvík Geirsson: „Það er allt í járnum“ „Ég er sannfærður um að stuðningur íbúanna muni skila sér í kjörkassann á laugardaginn,“ segir Lúðvík Geirsson, bæjarstjóri Hafnarfjarðar, en hann nær ekki kosningu inn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar samkvæmt nýjustu skoðanakönnuninni sem félagsvísindastofnun framkvæmdi fyrir viku síðan. Innlent 24.5.2010 14:22
Leynilega upptakan á Edition-hótelinu: „Ef ég á að taka fimmta sætið vil ég verða þinn maður í þessu“ Innlent