Úkraína
7 8 9 10 11 12 13 14 15 … 79 ›
Tucker Carlson í Moskvu til að taka viðtal við Vladimir Pútín Hinn umdeildi sjónvarpsmaður Tucker Carlson er staddur í Moskvu, að eigin sögn til að taka viðtal við Vladimir Pútín Rússlandsforseta. Hann segir nauðsynlegt að upplýsa Bandaríkjamenn um stríð sem þeir eru að fjármagna en vita fátt eitt um. Erlent 7.2.2024 08:06
Umfangsmiklar loftárásir á borgir Úkraínu í morgunsárið Sprengingar hafa heyrst í Kænugarði í morgun eftir að Rússar gerðu umfangsmiklar loftárásir á höfuðborgina og aðrar borgir í Úkraínu. Erlent 7.2.2024 06:52
Úkraínskir sérsveitarmenn sagðir berjast gegn Wagner í Súdan Úkraínskir sérsveitarmenn eru sagðir hafa um nokkuð skeið barist gegn málaliðum Wagner-Group. Nýtt myndband sem úkraínskur fjölmiðill hefur birt er sagt sýna rússneskan málaliða og meðlimi sveita sem kallast RSF í haldi úkraínskra sérsveitarmanna á vegum leyniþjónustu úkraínska hersins (GUR). Erlent 6.2.2024 17:01
Snerist hugur nokkrum tímum eftir að hann sagði aðgerðir nauðsynlegar Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, ráðlagði meðlimum þingflokks síns í gærkvöldi að greiða atkvæði gegn nýju frumvarpi um aukna gæslu og hertar aðgerðir á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð handa Úkraínumönnum og Ísraelum, auk annars. Erlent 6.2.2024 11:38
Langar viðræður um landamærin og hernaðaraðstoð skila „dauðu“ frumvarpi Öldungadeildarþingmenn úr báðum flokkum Bandaríkjaþings birtu í gær nýtt frumvarp um öryggi á landamærunum við Mexíkó og hernaðaraðstoð til Úkraínu og Ísrael. Frumvarpið var samið eftir langar viðræður en ef þingmönnum tekst að fá það samþykkt í öldungadeildinni þykir líklegt að það verði ekki svo gott sem tekið til umfjöllunar í fulltrúadeildinni. Erlent 5.2.2024 15:02
Ætlar að gera breytingar á ríkisstjórn og herstjórn Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er sagður íhuga umfangsmiklar breytingar á bæði ríkisstjórn sinni og stjórn herafla Úkraínu. Markmiðið er að hleypa nýju lífi í varnir Úkraínumanna um tveimur árum eftir að innrás Rússa hófst. Erlent 5.2.2024 12:35
Að eiga landamæri við stórveldi: Ólík stefna Úkraínu og Víetnam í öryggismálum Stórveldasamkeppni fer nú harðnandi í heiminum og nú geysar stærsta stríð í Evrópu frá því að seinni heimstyrjöldinni lauk. Átök í Miðausturlöndum stigmagnast og mikil spenna er nú á milli Bandaríkjanna og Kína í Austur Asíu. Skoðun 4.2.2024 15:21
Vill losa herinn við úreltan hugsunarhátt Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segir úkraínska herinn standa frammi fyrir miklum erfiðleikum. Þó sé hægt að komast í gegnum þá með því að endurhugsa hernaðaraðgerðir og losa herinn við úreltan hugsunarhátt og herinn þarf að sníða stakkinn eftir vexti, vegna samdráttar í hernaðaraðstoð. Erlent 1.2.2024 22:01
Viktor Orban gaf eftir: Ná saman um stuðning til Úkraínu Leiðtogar Evrópusambandsins hafa náð saman um stuðning til handa Úkraínu. Áður hafði Viktor Orban, forsætisráðherra Ungverjalands, sett sig upp á móti stuðningnum. Erlent 1.2.2024 11:17
Þurfa árið til að snúa vörn í sókn Ástandið á vígvöllum í austanverðri Úkraínu hefur færst Rússum í vil á undanförnum mánuðum. Rússar hafa mun meira af skotfærum fyrir stórskotalið, eiga fleiri skrið- og bryndreka og eiga auðveldar með að fylla upp í raðir sínar vegna mannfalls. Erlent 31.1.2024 22:30
Sagður vilja reka Járnherforingjann Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, er sagður ætla sér að skipta út Valerí Salúsjní, yfirmanni herafla landsins. Þeir funduðu í gær og bauð forsetinn Salúsjní að taka að sér stöðu varnarmálaráðgjafa en hann neitaði að segja af sér. Erlent 30.1.2024 18:21
Áhersla tjónaskrárinnar verði á alvarlegustu brotin Róbert Spanó var á þessu ári kjörinn í stjórn alþjóðlegrar tjónaskrár fyrir Úkraínu sem tekur til eignaskemmda, manntjóns og alvarlegra meiðsla sem orðið hafa í stríði Rússlands í Úkraínu. Gert er ráð fyrir því að nefndin starfi í það minnsta í þrjú ár. Innlent 27.1.2024 12:58
Semja ekki um landamærin til að grafa ekki undan Trump Mitch McConnell, leiðtogi Repúblikana í öldungadeild Bandaríkjaþings, tilkynnti þingflokki sínum í gær að leiðtogar flokksins væru hættir að reyna að ná samkomulagi við Demókrata um aðgerðir á landamærum ríkisins og Mexíkó. Hann sagði Donald Trump, væntanlegan forsetaframbjóðanda flokksins, vilja keyra á vandanum á landamærunum í baráttunni fyrir forsetakosningarnar í nóvember. Erlent 25.1.2024 10:50
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Barátta um skotfæri Nærri því tvö ár eru liðin frá því innrás Rússa í Úkraínu hófst. Engar vísbendingar eru um að stríðið muni enda í bráð en staða Úkraínumanna hefur versnað nokkuð á undanförnum mánuðum og má það að miklu leyti rekja til skorts á skotfærum. Erlent 25.1.2024 08:00
Vill að alþjóðleg rannsókn fari fram á vélinni sem hrapaði Forseti Úkraínu, Volodomír Selenskíj, hefur sakað Rússa um að leika sér að lífum úkraínskra fanga. Selenskíj hefur krafist þess að alþjóðleg rannsókn fari fram á vélinni sem hrapaði í Belgorod-héraði í gær. Erlent 25.1.2024 07:28
Herflugvél féll til jarðar í Belgorod Flutningaflugvél rússneska hersins hrapaði til jarðar í Belgorod-héraði í morgun og sprakk. Varnarmálaráðuneyti Rússlands segir Il-76 flugvélina hafa borið 65 úkraínska stríðsfanga sem til stóð að skipta við Úkraínumenn, auk áhafnar, alls 74 manns. Erlent 24.1.2024 10:08
Láta ekki ógna sér með stórri æfingu NATO Steadfast Defender 24, sem eru stærstu heræfingar Atlantshafsbandalagsins í áratugi, marka afturför til tíma kalda stríðsins milli Nato og Sovétríkjanna, samkvæmt Alexander Grushko, aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands. Hann segir æfingarnar auka hættuna á átökum en að Rússum verði ekki ógnað með þessum hætti. Erlent 21.1.2024 14:15
Drónaárásir í Rússlandi í nótt Úkraínumenn eru sagðir hafa gert drónaárásir í Rússlandi í nótt en ein þeirra olli miklum eldi á olíuvinnslustöð nærri Pétursborg. Hin árásin ku hafa verið gerð á verksmiðju þar sem loftvarnarkerfi eru framleidd. Erlent 21.1.2024 09:34
Viðræðurnar snerust um uppgjöf, ekki frið Úkraínskir erindrekar höfðu ekki samþykkt skilmála Rússa áður en viðræðum var hætt nokkrum mánuðum eftir innrás Rússa í Úkraínu. Þeir segja viðræðurnar ekki hafa snúist um frið, heldur uppgjöf. Erlent 7.1.2024 07:02
Pólverjar vilja vopna Úkraínumenn langdrægum flaugum Utanríkisráðherra Póllands hefur kallað eftir því að bandamenn Úkraínumanna sjái þeim fyrir langdrægum eldflaugum til að gera stjórnvöldum kleift að hæfa bækistöðvar Rússa í Úkraínu. Erlent 3.1.2024 12:54
Pútin segist eiga harma að hefna og ræðst gegn Kænugarði Umfangsmiklar loftárásir standa nú yfir á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu. Samkvæmt blaðamönnum AFP hafa að minnsta kosti tíu háværar sprengingar heyrst í morgun og íbúar hafa verið hvattir til að leita skjóls. Erlent 2.1.2024 07:51
Selenskí boðar stóraukna vopnaframleiðslu á nýju ári Vólódómír Selenskí, forseti Úkraínu, hefur heitið því að eigin vopnaframleiðsla Úkraínumanna muni stóraukast á nýju ári. Erlent 1.1.2024 07:51
Tugir særðir í hefndaraðgerðum Rússa Rússar gerðu loftárásir á Úkraínu í nótt og nokkrir tugir eru særðir. Árásirnar eru hefndaraðgerðir Rússa eftir að tuttugu og fjórir féllu í umfangsmikilli árás Úkraínu á rússnesku borgina Belgorod í gær. Hún er að sögn rússneskra stjórnvalda sú versta á Rússland frá upphafi stríðsins. Erlent 31.12.2023 12:12
Fleiri látnir í loftárás á rússnesku borgina Belgorod Átján manns létu lífið í árás Úkraínumanna á rússnesku borginni Belgorod í dag. Þar af þrjú börn, samkvæmt rússneskum yfirvöldum. Einnig særðust 111 manns. Erlent 30.12.2023 21:44
Úkraínsk körfuboltahetja fórst í stórfelldum árásum Rússa Einn fórst og fjórir særðust í loftárásum Úkraínuhers á landamærahéraðið Belgorod í suðurhluta Rússlands í gær. Þetta segir héraðsstjóri Belgorod en Bryansk-hérað varð sömuleiðis fyrir eldflaugaárásum Úkraínumanna. Erlent 30.12.2023 10:28
Minnst þrjátíu látnir í umfangsmestu loftárásum Rússa til þessa Minnst þrjátíu manns létu lífið í umfangsmestu loftárásum Rússa í Úkraínu til þessa. Einnig særðust meira en 160 þegar sprengjum ringdi yfir Kænugarð, Ódessu, Dnípropetrovsk, Karkív og Lvív í morgun. Erlent 29.12.2023 22:32
Heimsótti bæ sem Rússar reyna að umkringja Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, virðist hafa heimsótt hermenn við og í bænum Avdívka, sem Rússar hafa reynt að umkringja frá því í október. Forsetinn birti myndband af sér standa við skilti bæjarins þar sem hann sagðist hafa þakkað hermönnum á svæðinu fyrir harða og erfiða baráttu þeirra og veitti hann hermönnum orður. Erlent 29.12.2023 16:56
Umfangsmestu loftárásir Rússa hingað til Talsmaður flughers Úkraínu segist aldrei hafa upplifað jafn margar árásir á sama tíma eins og Rússar hafa gert nú í morgun. Rússar gerðu loftárásir um allt land og notuðu til þess bæði eldflaugar og dróna. Erlent 29.12.2023 08:24
Síðasta vopnasendingin í bili samþykkt Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, hefur nú samþykkt hernaðaraðstoð til handa Úkraínu upp á 250 milljónir dollara. Erlent 28.12.2023 07:41
Árás Úkraínumanna á skip við Krímskaga hafi heppnast Rússnesk yfirvöld hafa viðurkennt að herskip sem lá við höfn á Krímskaga sé mikið skemmt eftir úkraínska árás. Áður höfðu Úkraínumenn haldið því fram að þeim hafi tekist að gjöreyðileggja skipið. Erlent 26.12.2023 10:11