
Eldgos og jarðhræringar

Fótbrotnaði í nótt á leið að gosstöðvum
Lögeglan á Suðurnesjum sinnti í nótt útkalli vegna manns sem hafði lagt af stað að upptökum eldgossins frá Reykjanesbraut og fótbrotnaði í gjótu.

Gossprungan að lengjast til sex í morgun
Heildarlengd gossprungunnar er um sjö kílómetrar. Hún hélt áfram að lengjast til um klukkan sex í morgun. Enn dregur úr virkni eldgossins en enn er óljóst hvort því ljúki fljótt eða hvort það haldi áfram með minni hraunstraumi.

Örfáir starfsmenn fara inn í Svartsengi til að huga að búnaði
Birna Lárusdóttir upplýsingafulltrúi HS Orku segir það létti hvernig eldgosið og hraunstreymið er að þróast. Eldgosið hófst í gærkvöldi og gýs enn úr tveimur sprungum við Stóra-Skógfell. Birna segir enga innviði í Svartsengi í hættu og hraunið ekki ógna vatnslögn þeirra frá Lágum.

Fólk farið til vinnu í Svartsengi og Grindavík
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjóri á Suðurnesjum segir hraun ekki renna í átt að Grindavík og enga innviði í Svartsengi í hættu eins og er. Hraunið sé enn í um 300 metra fjarlægð frá Grindavíkurvegi og að það ekki ógna vatnslögn HS Orku.

Ákveðinn léttir en áfram óvissa
Fannar Jónasson, bæjarstjóri Grindavíkurbæjar, segir stöðuna nú vera æði góða miðað við það sem hefði geta verið ef upptök eldgossisins hefðu verið sunnar og nær bænum.

„Við hlaupum í átt að eldgosi á meðan aðrir hlaupa í burtu frá því“
„Hún er fín, miðað við allt og allt,“ sagði Hjördís Guðmundsdóttir, samskiptastjóri Almannavarna, um stöðuna í samtali við Bítið í morgun. „Eldgosið mallar þarna og virknin er mest til norðurs eins og komið hefur fram í fjölmiðlum.“

Gosið í myndum
Ljósmyndarar og tökumenn voru mættir á vettvang um leið og fór að gjósa í gær, eins og þeirra er von og vísa. Hér má finna nokkrar myndir sem sýna gosið og viðbragð við því.

Vaktin: Grindvíkingar fá að snúa aftur
Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 í gær í kjölfar öflugrar skjálftahrinu. Gossprungan er um sjö kílómetra löng en ekki virk alla leiðina. Gossprungan nær norðar en í síðustu gosum. Hraun rennur ekki í átt að Grindavík og eru allir helstu innviðir taldir öruggir eins og er.

Hafa áhyggjur af kaldavatnslögn
Mælingar benda til að hraunflæði eldgossins sem hófst í Sundhnúksgígaröðinni í kvöld sé um 1.200 til 1.500 rúmmetrar á sekúndu. Gert er ráð fyrir því að hraun nái fljótlega að Grindavíkurvegi.

Glóandi hraun í náttmyrkrinu
Þrátt fyrir hvassviðrið á Reykjanesi náði Björn Steinbekk, myndatökumaður, glæsilegum myndum úr lofti af nýju hrauninu sem rennur nú á Sundhnúksgígaröðinni. Þar sést glóaandi hraunið flæða í myrkrinu.

Dregur úr skjálftavirkni og gossprungan að ná hámarkslengd
Náttúruvársérfræðingur á Veðurstofunni telur að gossprungan sé búin að ná hámarkslengd og að byrjað sé að draga úr skjálftavirkni.

Grindavík ekki í hættu ef fer sem horfir
Ekkert hraunrennsli er í átt að Grindavík og bærinn er ekki í hættu ef gosið heldur áfram með þessum hætti, að sögn Magnúsar Tuma Guðmundssonar, jarðeðlisfræðings, sem flaug yfir gosstöðvarnar í kvöld. Hann áætlar að hraun þeki yfir fimm ferkílómetra.

Yfirgáfu Grindavík í snarhasti: „Ömurlegt ástand að horfa upp á þetta“
Eiríkur Óli Dagbjartsson og Sólveig Ólafsdóttir voru stödd á heimili sínu í Grindavík þegar eldgos hófst í kvöld. Þau eru nú í Hveragerði en þetta er í annað sinn sem þau þurfa að flýja heimili sitt þegar eldsumbrot hefjast.

Þriggja metra hrauntunga renni í átt að Grindavíkurvegi
Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn hjá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra segir eldgosið svipað að stærð og áður en hraunstreymið meira í . Töluverður hraunstraumur stefni í átt að Grindavíkurvegi og hugsanlega að varnargörðum við Bláa lónið.

Sjáðu sprunguna opnast
Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 í kvöld en öflug jarðskjálftahrina hófst kl. 20:48.

Teygir sig frá Grindavík ólíkt fyrri gosum
Gossprungan sem opnaðist á Sundhnúksgígaröðinni í kvöld teygir sig nú lengra til norðurs en suðurs og frá Grindavík, ólíkt fyrri gosum. Hraun rennur hratt og er byrjað að nálgast Grindavíkurveg, að sögn náttúruvársérfræðings Veðurstofu Íslands.

Um 1.300 manns í og við Bláa lónið þegar gosið hófst
Um 1.300 manns, bæði gestir og starfsfólk, voru í Bláa lóninu við Svartsengi í kvöld þegar rýming hófst vegna eldgossins sem hófst við Sýlingarfell á tíunda tímanum í kvöld.

Reykjanesbraut lokað við Straumsvík
Búið er að loka Reykjanesbraut við Straumsvík tímabundið á meðan viðbragðsaðilar ná utan um aðstæður.

Neyðarstigi almannavarna lýst yfir
Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við Lögreglustjórann á Suðurnesjum ákveðið að lýsa yfir neyðarstigi almannavarna vegna eldgossins sem hófst á tíunda tímanum í kvöld, við Sundhnúkagíga.

Vaktin: Eldgos hafið
Eldgos hófst á Sundhnúksgígaröðinni klukkan 21:26 fimmtudaginn 22. ágúst eftir að öflug jarðskjálftahrina byrjaði klukkan 20:48. Stuttu eftir að fyrstu merki sáust um kvikuhlaup eða eldgos hófst rýming í Grindavík, Svartsengi og við Bláa lónið. Rýmingu var lokið um 40 mínútum síðar.

Færri skjálftar en síðustu daga
Um fimmtíu skjálftar mældust á Reykjanesskaga síðastliðinn sólarhring, sem er ívið minna en mælst hefur síðustu daga.

Hafa áhyggjur af því að hraun muni ná inn fyrir varnargarða
Tilefni er til þess að hafa áhyggjur af því að hraun geti náð inn fyrir varnargarða við Grindavík í næsta eldgosi. Veðurstofan hefur uppfært hættumat vegna jarðhræringa á Reykjanesskaga, sem er óbreytt frá síðustu viku.

Aðstæður svipaðar og dagana fyrir síðasta gos
Um 110 skjálftar mældust í gær við kvikuganginn í Sundhnúksgígaröðinni. Það er umtalsverð fjölgun skjálfta en í síðustu viku voru þeir sextíu til níutíu á sólarhring.

Aukning í skjálftavirkni heldur áfram
Áframhaldandi aukning er í skjálftavirkni við Sundhnúksgígaröðinni líkt og verið hefur síðustu daga.

Öllu starfsfólki kollagenvinnslu í Grindavík sagt upp
Öllu starfsfólki Marine Collagen í Grindavík hefur verið sagt upp störfum. Í janúargosinu opnaðist stór sprunga á lóð fyrirtækisins en húsnæðið hafði verið óstarfhæft alveg síðan 10. nóvember.

Reykur í hrauni ekki eldgos
Reykur sést stíga upp úr hrauni á vefmyndavél RÚV á fjallinu Þorbirni. Veðurstofan segir eldgos ekki hafið heldur að líklega sé um vatnsgufu að ræða.

Mesta rúmmálið sem hefur safnast frá því að gosin hófust
Enn er óbreytt staða á Reykjanesi og líklegt að annað hvort eldgos eða kvikuinnskot geti hafist á hverri stundu. Meiri virkni er í dag en í gær en ekkert stórt stökk að sögn Minneyjar Sigurðardóttur náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Enn safnast kvika undir Svartsengi.

Fylgjast náið með barnafjölskyldum í Grindavík
Úlfar Lúðvíksson lögreglustjórinn á Suðurnesjum segir þá sem dvelja næturlangt í Grindavík mjög meðvitaða um þá hættu sem steðjar að. Barnaverndaryfirvöld fylgist með þeim fjölskyldum sem dvelji með börn í bænum. Landris og kvikusöfnun heldur áfram á sama hraða undir Svartsengi en engin skjálftavirkni mælist enn.

Öflugur skjálfti í Bárðarbungu
Klukkan 4:39 í nótt reið skjálfti að stærð 3.1 yfir í norðaustanverðri Bárðarbunguösju. Nokkrir minni skjálftar hafa mælst síðan.

Skjálfti af stærðinni 3,0 í Mýrdalsjökli en enginn órói
Í dag klukkan 16:55 var skjálfti af stærðinni 3,0 í Mýrdalsjökli. Enginn órói mældist í kjölfarið en skjálftar af þessari stærð eru algengir í Mýrdalsjökli.