Eldgos og jarðhræringar
35 36 37 38 39 40 41 42 43 … 133 ›
Skilja að fólk vilji berja gosið augum en hraunið sé hættulegt í myrkrinu Nokkuð var um að vera hjá viðbragðsaðilum við gosstöðvarnar þó nóttin hafi verið tíðindalítil heilt yfir. Samskiptastjóri almannavarna segir viðbragðsaðila skilja vilja fólks til að berja eldgosið augum en aðstæður séu ekki hliðhollar til skoðunarferða. Innlent 20.12.2023 08:05
Breytt landslag og viðbragðsaðilar komnir að þolmörkum Aðgerðastjórn og vettvangsstjórn munu funda klukkan 9, að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Hann segir ekki fyrirsjáanlegt að opnað verði fyrir aðgengi að gosstöðvunum. Innlent 20.12.2023 07:08
Vaktin: Uppfæra hættumat og telja töluverða hættu í Grindavík Enn virðist draga úr eldvirkni við Sundhnúkagíga. Fréttastofa Vísis, Stöðvar 2 og Bylgjunnar fylgist með þróun mála á Reykjanesskaga í allan dag. Innlent 20.12.2023 06:30
Enn dregur úr eldvirkni en of snemmt að spá um goslok Enn virðist draga úr eldvirkni við Sundhnúkagíga eftir því sem óróagröf á Veðurstofu Íslands sýna. Þetta segir Minney Sigurðurðardóttir náttúruvársérfræðingur. Innlent 20.12.2023 06:21
„Ég vildi bara að þessum manni yrði bjargað“ Ernir Snær Bjarnason er flugmaðurinn sem varð var við göngumann sem sendi neyðarboð við gosstöðvarnar á Reykjanesi fyrr í kvöld. Hann hringsólaði yfir manninum í klukkustund áður en hann var sóttur af þyrlu Landhelgisgæslunnar. Innlent 19.12.2023 23:55
Íbúar Suðurnesja léttir en þreyttir Hljóðið í íbúum Suðurnesja sem fréttastofa náði tali af í dag var ágætt, þrátt fyrir að margir hafi verið þreyttir eftir að hafa fylgst með fréttum af eldgosi nánast í bakgarðinum fram eftir nóttu. Innlent 19.12.2023 22:52
Svakalegur tími í að snúa ferðamönnum við Björgunarsveitarkona sem sinnti gosgæslu í kvöld segir svakalegan tíma hafa farið í að spjalla við ferðamenn og snúa þeim við sem hyggjast ætla að gosi. Þá sé töluverður fjöldi sem stöðvi bíl sinn á Reykjanesbrautinni. Innlent 19.12.2023 22:31
Fannst kaldur og hrakinn á gossvæðinu Þyrla Landhelgisgæslunnar auk björgunarsveita var kölluð út fyrr í kvöld til leitar að manni á gossvæðinu sem gaf flugvél sem þar átti leið hjá neyðarmerki. Maðurinn fannst fyrir stundu, kaldur og hrakinn. Innlent 19.12.2023 21:08
Sinna vaktinni allan sólarhringinn Vettvangsstjórn á hættusvæðinu sinnir eftirliti með gossvæðinu allan sólarhringinn auk aðgerðarstjórnar. Varðstjóri segir stöðuna sífellt endurmetna. Innlent 19.12.2023 20:59
Fólk geti verið sátt að hraun renni ekki í átt til Grindavíkur Kristín Jónsdóttir eldfjalla- og jarðskjálftasérfræðingur, segir helst hættu á að hraun flæði yfir Grindavíkurveg nái það til mannvirkja. Fólk megi vera sátt við það hvar gosupptök voru fyrst úr varð. Innlent 19.12.2023 18:49
Fyrirvari á nýjum sprungum geti verið mjög stuttur Veðurstofan hefur gefið út nýtt hættumatskort byggt á túlkun nýjustu gagna og út frá stöðu virkninnar í eldgosinu við Sundhnúksgíga. Hætta hefur aukist umtalsvert á öllum svæðum sem skilgreind voru á eldra hættumatskorti. Áfram eru taldar líkur á frekari gosopnunum. Innlent 19.12.2023 18:37
Svipuð kvika en mögulega þróaðri Helga Kristín Torfadóttir eldfjallafræðingur, er komin með sýni úr glænýju hrauninu á Reykjanesi. Hún er ein fræðinga frá Háskóla Íslands sem freistuðu þess að finna sýni úr kvikunni í dag, hvort sem það var fljótandi eða ekki. Innlent 19.12.2023 16:52
Segir mikilvægt að Grindvíkingar fái andrými Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Grindvíkingur segir mikilvægt að stuðningur stjórnvalda við Grindvíkinga haldi áfram þrátt fyrir að styttist vonandi í að þeir geti farið að fara heim. Innlent 19.12.2023 16:11
Gosið hafi lítil áhrif á björgunarsveitir í bili Eldgosið við Sundhnúksgíga hefur lítil áhrif á störf björgunarsveita á landinu enn sem komið er. Upplýsingafulltrúi Landsbjargar segir tímann þurfa að leiða í ljós hvort ræsa þurfi út sveitir alls staðar að til þess að gæta galvaskra göngumanna. Innlent 19.12.2023 15:42
Fylgjast með hraunlíkönum og hvort nýjar sprungur myndist Benedikt Gunnar Ófeigsson, jarðeðlisfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, segir jarðvísindamenn nú fylgjast með hraunlíkönum og hvort það séu nýjar sprungur að myndast við kvikuganginn á Reykjanesskaga. Innlent 19.12.2023 15:39
Myndasyrpa: Rauðglóandi næturhiminn og myndun nýrra gíga Eldgosinu, sem hófst við Sundhnúksgíga seint í gærkvöldi, er ekki hægt að lýsa öðruvísi en stórfenglegu. Fjöldi fólks lagði leið sína í átt að eldgosinu til að berja það augum og næturhimininn var rauður vegna endurvarpsins frá eldinum. Innlent 19.12.2023 15:09
Eldfjallafræðingar freista þess að ná sýnum úr eldgosinu Eldfjallafræðingar frá Háskóla Íslands freista þess nú að taka stöðuna og ná sýnum af eldgosinu. Eldfjallafræðingur segir aðgerðina taka einhverjar klukkustundir og mikilvægt sé að nýta dagsbirtuna vel. Innlent 19.12.2023 14:23
Sjónarspil gærkvöldsins engu líkt „Sú sjón sem við sáum í gærkvöldi og náðum að fanga var eitthvað sem við höfum ekki séð síðan þessir eldar byrjuðu á Reykjanesi árið 2021,“ segir myndatökumaðurinn Björn Steinbekk. Hann flaug dróna sínum yfir eldgosinu í nótt. Innlent 19.12.2023 14:17
Nokkrum göngumönnum snúið við í morgun Hlynur Stefánsson björgunarsveitarmaður, sem staðið hefur vaktina við eldgosið á Reykjanesskaga, segir vinnu björgunarsveitar hafa gengið vel. Fólk hafi farið að fyrirmælum um að vera ekki á svæðinu. Innlent 19.12.2023 13:30
Bláa lónið lokað til 28. desember Forsvarsmenn Bláa lónsins hafa tekið ákvörðun um að það verði lokað til 28. desember hið minnsta vegna eldgossins sem hófst við Sundhnúksgíga í gærkvöldi. Viðskipti innlent 19.12.2023 13:29
Gosmengun á höfuðborgarsvæðinu í nótt Einar Halldórsson teymisstjóri loftgæðateymis Umhverfissstofnunar segir að gosmengunar gæti orðið vart á höfuðborgarsvæðinu seint í nótt eða fyrramálið. Það kemur einnig fram í tilkynningu á síðu Veðurstofunnar. Innlent 19.12.2023 12:58
Fólk geti komið sér í þannig ógöngur að ekki sé hægt að bjarga því Víðir Reynisson, sviðsstjóri almannavarna, biðlar til fólks að fylgja fyrirmælum stjórnvalda varðandi eldgosið. Fólk sem fari að gosinu í óleyfi geti komið sér í þá stöðu að ekki verði hægt að bjarga því. Innlent 19.12.2023 12:57
Þróunin svipuð og var við Fagradalsfjall Áfram dregur úr krafti eldgossins við Sundhnúksgíga en hraunflæði er um það bil fjórðungur af því sem það var í byrjun og er einungis þriðjungur sprungunnar virkur. Kvikustrókar eru lægri en þeir voru í byrjun og eru um það bil þrjátíu metrar þar sem þeir ná hæst. Innlent 19.12.2023 12:45
Þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð að leiðarljósi Katrín Jakobsdóttir foræstisráðherra segir ríkisstjórnina að sjálfsögðu hafa rætt eldgosið á Reykjanesskaga á reglubundnum fundi sínum í ráðherrabústaðnum í morgun. Hún sé þess þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð í hávegum og enginn hafi verið í Grindavík þegar eldgos hófst. Innlent 19.12.2023 12:38
Í áfalli og ósofin: Fóru með verðmæti til Grindavíkur í gær Íbúi í Grindavík segir fréttir gærkvöldisins hafa verið mikið áfall þrátt fyrir að eldgosinu fylgi einnig léttir. Fjölskyldan hafi farið í gær með verðmæti aftur til Grindavíkur í kjölfar ummæla lögreglustjórans á Suðurnesjum um að hann teldi líklegt að Grindvíkingar gætu haldið jól heima. Þau séu nú í áfalli og ósofin. Innlent 19.12.2023 11:36
Von á erlendum fjölmiðlum og fjölmiðlamiðstöðin opnuð á ný Fjölmiðlamiðstöð fyrir erlenda fjölmiðla, vegna eldgossins á Reykjanesi sem hófst í gærkvöldi, verður opnuð í Hafnarfirði á ný í dag að sögn ferðamálastjóra. Eldgosið hófst um fjóra kílómetra norðaustan Grindavíkur, norðan Sundhnúks í Sundhnúkaröðinni klukkan 22:17 í gærkvöldi. Innlent 19.12.2023 10:27
Framleiðnin gæti vel hafa verið meiri en 200 rúmmetrar Í færslu Eldfjalla- og náttúruvárhóps Suðurlands á Facebook segir að verulega hafi dregið úr framleiðni gossins síðan það hófst fyrir hálfum sólarhring. Innlent 19.12.2023 10:18
Eldgosið hefur ekki áhrif á flug Icelandair Eldgosið sem hófst norðan Grindavíkur í gærkvöldi hefur ekki áhrif á flugáætlun Icelandair eins og staðan er nú. Viðskipti innlent 19.12.2023 10:13
Aukafréttatími í sjónvarpi í hádeginu Fréttastofa Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar efnir til aukafréttatíma klukkan tólf á hádegi vegna eldgossins á Sundhnúkagígaröðinni norðan Grindavíkur. Innlent 19.12.2023 09:49
Alls ekkert túristagos Eldgosið norður af Grindavík er alls ekkert túristagos að sögn samskiptastjóra almannavarna. Eins og er stefnir hraunið ekki í átt að Grindavík en mögulega gæti það runnið yfir Grindavíkurveg. Innlent 19.12.2023 09:26