
Ferðaþjónusta

Lætur bankann og sveitarfélagið heyra það: „Hættu að hafa trú á ferðaþjónustunni“
Í lokaþættinum í þessari þáttaröð af Gulli Byggir á Stöð 2 var haldið áfram að fylgjast með þeim hjónunum Önnu Lísu Hilmarsdóttur og Brynjari Bergssyni sem sóttu hús til Akureyrar til að koma fyrir á Refsstöðum.

Að borga próf, eða borga ekki próf
Í dag mælist atvinnuleysi í tveggja stafa tölu í nánast hverju einasta sveitarfélagi landsins.

Allt það helsta um fyrirkomulag Ferðagjafarinnar
Hægt verður að skipta ferðagjöf stjórnvalda niður og nýta hana innan fjölbreyttrar flóru ferðaþjónustufyrirtækja með sérstöku smáforriti sem hannað var til verksins.

Bein útsending: Svona verður Ferðagjöfin til Íslendinga útfærð
Kynningarfundur þar sem farið verður yfir útfærslu á Ferðagjöf, stafrænu gjafabréfi stjórnvalda, verður haldinn nú klukkan níu.

Göngustígar við Skógafoss lagðir ull af íslensku sauðfé
Ull íslensku sauðkindarinnar hefur fengið nýtt hlutverk, - sem undirlag á göngustíga sem verið er að leggja yfir mýrlendi ofan við Skógafoss. Ullinni þannig ætlað að verja ferðamenn frá því að blotna í fæturna.

Perlur Íslands: Seitlandi töfraorka og stórkostleg upplifun
Álfrún Pálsdóttir kynningarstjóri Hönnunarmiðstöðvar segist fá einstaka orku á Vestfjörðunum. Hún á ættir að rekja til Vestfjarða og afi hennar þekkir þar hverja þúfu.

Icelandair stefnir á að hefja flug 15. júní
„Við stefnum á að komast á flug upp úr 15. júní og ná sem fyrst að komast í daglega tíðni til okkar helstu áfangastaða til að byrja með og svo auðvitað fylgjumst við eins og allir aðrir með tilkynningum frá okkar nágrannalöndum um hvenær þau opna,“ segir Birna Ósk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri sölu- og þjónustusviðs Icelandair.

Áhættugreining Landspítalans komin í hendur ráðherra
Heilbrigðisráðherra hefur fengið áhættugreiningu Landspítalans í hendurnar. Þá á verkefnahópur um veiruskimanir á landamærunum að skila fyrstu niðurstöðum í dag.

Perlur Íslands: Gönguleiðirnar hver annarri fallegri
Kolbrún Pálína Helgadóttir ferðast mikið innanlands og segir að sjórinn hafi mikið aðdráttarafl.

„Ég hef aldrei séð svona mikla samstöðu í hópnum“
Mikil samstaða er meðal flugfreyja-og þjóna í kjarabaráttu við Icelandair.

Hægt verði að greiða með allt að 15 gjafabréfum
Gjafabréfið sem hvetja á Íslendinga til að ferðast innanlands í sumar er farið að taka á sig mynd.

Perlur Íslands: „Íslensk fegurð hvert sem augað leiðir þig“
Frumkvöðullinn Elísabet Gunnars á erfitt með að velja sinn uppáhalds ferðamannastað á Íslandi. heimsækir Fnjóskadal á hverju ári með fjölskyldunni.

Að velja það besta
Íslendingar standa frammi fyrir risavöxnu verkefni, það er öllum ljóst. Uppbygging ferðaþjónustu hefur á undanförnum áratug styrkt stoðir efnahags Íslands, fjölgað störfum og skapað mikil verðmæti.

Ætluðu bara að opna matarvagn en bættu við veitingastað eftir óvænt símtal
Það er ekki á hverjum degi sem nýr veitingastaður er opnaður á Akureyri, hvað þá í miðjum kórónuveirufaraldri, þegar almennt er verið að draga saman seglin á þessum markaði. Það stoppaði þó ekki veitingahjónin Inga Þór Arngrímsson og Nikolina Gracanin í að opna veitingastaðinn Mosa um helgina.

Ísland vill sjá þig í sumar: Bílabúð Benna leggur ferðaþjónustunni lið
Bílabúð Benna hvetur Íslendinga til ferðalaga innanlands í samstarfi við Fosshótel, Orkuna og Bylgjuna. Ferðakaupauki fylgir völdum bílum og hægt að skrá sig í ævintýraferðapott

Flugið og raunveruleikinn
Seðlabankastjóri var gestur Kastljóss í gærkvöldi og ræddi um efnahagshorfur. Þar báru að vonum málefni Icelandair á góma. Seðlabankastjóri telur að það myndi ekki hafa mikil áhrif til skamms tíma ef Icelandair færi í þrot. Ástæðan fyrir því að mati seðlabankastjóra er sú, að það muni hvort eð er koma svo fáir ferðamenn til Íslands á þessu ári.

Ríkiskaup leitast við að leiðrétta rangfærslur um útboð á kynningarherferð
Ríkiskaup hafa sent frá sér tilkynningu þar sem því er haldið fram að fjölmiðlaumfjöllun um nýafstaðið útboð kynningarherferðarinnar „Ísland – saman í sókn“ feli í sér rangfærslur sem tilefni sé til að leiðrétta.

Opnun landamæra getur tryggt tekjur vegna afbókunarskilmála
Ef svartsýn spá Seðlabankans rætist mun það hafa slæmar afleiðingar fyrir mörg ferðaþjónustufyrirtæki að mati Samtaka ferðaþjónustunnar. Með opnun landamæra er þó líklegra að þeir sem eigi pantaðar ferðir til landsins standi við ferðaplön sín vegna afbókunarskilmála.

Mesti samdráttur á Íslandi í 100 ár
Samdráttur í efnahagsmálum Íslendinga hefur ekki verið meiri á einu ári frá því árið 1920. Atvinnuleysi verður meira á þessu ári en nokkru sinni fyrr og samdráttur í útflutningi sjávarafurða hefur ekki verið meiri síðustu fjóra áratugina.

Telja dómara sem dæmdi á skjön við alla hina tengjast bresku auglýsingastofunni
Ekkert hefur þó fengist staðfest í þeim efnum en Vísir hefur sent Ríkiskaupum og Íslandsstofu, sem fara fyrir markaðsátakinu, fyrirspurn vegna málsins.

Pipar kærir Ríkiskaup og krefst þess að eigin tillaga verði valin
Auglýsingastofan Pipar/TBWA hefur kært Ríkiskaup vegna þeirrar ákvörðunar að velja tilboð bresku auglýsingastofunnar M&C Saatchi í markaðsátakinu „Ísland – saman í sókn“.

Mörg hótel muni bjóða upp á einangrunarganga
Mörg hótel á landinu munu bjóða upp á einangrunarganga fyrir ferðamenn sem kunna að veikjast af kórónuveirunni hér á landi eftir opnun landamæra 15. júní.

Á ekki von á biðröðum af ferðamönnum þegar landið opnar
Forstjóri Bílaleigu Akureyrar segist ekki eiga von á því að biðraðir skapist af ferðamönnum þegar landið verður opnað á ný um miðjan næsta mánuð.

Perlur Íslands: „Einhver fallegasta dagleið sem Ísland hefur upp á að bjóða“
„Ég ætla að velja Fimmvörðuháls, enda einhver fallegasta dagleið sem Ísland hefur uppá að bjóða,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra en hún mun ferðast innanlands í sumar og hefur gert töluvert af því undanfarin ár.

Þórólfur ósammála þeim sem eru ósammála
„Ég er bara ekkert sammála þessari skoðun og vænti þess að ég geti rætt við þessa góðu kollega mína,“ segir Þórólfur Guðnason sóttvarnarlæknir um gagnrýni sem læknar hafa sett fram á áætlanir um að opna aftur fyrir komu ferðamanna hingað til lands

Ferðamenn vörðu 109 milljörðum á hótelum og veitingastöðum í fyrra
Einkaneysluútgjöld erlendra ferðamanna hér á landi námu samtals um 284 milljörðum króna á árinu 2019, þar af vörðu þeir um 109 milljörðum króna í veitinga- og gistiþjónustu.

Sveitin verði mataráfangastaður á heimsvísu
Ferðaþjónustuaðilar í Eyjafjarðarsveit láta ekki kórónuveirufaraldurinn stoppa áætlanir um að gera sveitina að mataráfangastað á heimsvísu.

Ósammála því að réttindi neytenda séu ekki tryggð í nýju frumvarpi
Frumvörp vegna nýjustu aðgerða ríkisstjórnarinnar vegna kórónuveirufaraldursins voru samþykkt í ríkisstjórn á föstudaginn og koma til kasta þingsins eftir helgi. Umdeildasta ráðstöfunin er að ferðaskrifstofum verði heimilt að gefa út inneignarnótur í stað þess að endurgreiða ferðir sem ekki hafa verið farnar.

Ferðamenn og fíkniefni í Víglínunni
Á meðan stjórnvöld og þing eru á kafi í kófi kórónuveirunnar gægðust þau út úr fíkniefnakófinuþegar Alþingi veitti frumvarpi heilbrigðisráðherra um neyslurými brautargengi. Ferðamála- og nýsköpunarráðherra ræðir stöðu ferðaþjónustunnar og Halldóra Mogensen stöðuna í fíkniefnastríðinu í Víglínunni í dag.

Vilja fá að bjóða landsmönnum út í Hrísey í sumar
Hríseyingar stefna ótrauðir á það að lokka Íslendinga út í eyjuna í sumar. Formaður Ferðamálafélags eyjunnar lofar nógu plássi og engum troðningi fyrir þá sem eru orðnir þreyttir á inniveru vetrarsins.