Ferðaþjónusta

Samkeppnishæfni flugs og uppbygging flugvalla
Í samgönguáætlun sem lögð hefur verið fram er gert ráð fyrir því að nauðsynleg uppbygging varaflugvalla til að tryggja flugöryggi verði greidd af flugrekendum með nýju gjaldi, svonefndu "hóflegu varaflugvallargjaldi“.

„Aldrei séð fjöruna svona rosalega“
Þórólfur Sævar Sæmundsson, leiðsögumaður, segist aldrei hafa séð jafn rosalegan öldugang í Reynisfjöru og var þar um tíma eftir hádegi í dag.

Sjóböðin á Húsavík fá nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar
Sjóböðin á Húsavík hlutu í dag nýsköpunarverðlaun ferðaþjónustunnar fyrir árið 2019 en verðlaunin eru veitt ár hvert þann 11. nóvember sem er afmælisdagur Samtaka ferðaþjónustunnar.

Á 142 kílómetra hraða undir áhrifum áfengis
Erlendur ferðamaður sem var á ferð um Suðurlandsveg við Stórólfshvol síðastliðinn þriðjudag var tekinn á 142 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund.

Ferðamaður slasaðist í Reynisfjöru
Viðbragðsaðilar á Suðurlandi voru kallaðir út um klukkan 15 í dag vegna erlends ferðamanns sem hafði slasast í miklum öldugangi í Reynisfjöru.

Kveikt á skjá númer hundrað
Kveikt var á hundraðasta upplýsingaskjá Safetravel-verkefnisins við hátíðlega athöfn á Akureyri í gær. Formaður slysavarnafélagsins Landsbjargar telur að verkefnið hafi skilað sér í færri óhöppum.

Innkoma Play jákvæð en þó ekki úrslitaatriði
"Eitt nýtt flugfélag með tvær þotur og sex áfangastaði er náttúrulega ekki "make or brake“ fyrir íslenska ferðaþjónustu en við fögnum að sjálfsögðu alltaf öllum sem hafa trú á áfangastaðnum,“ segir framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar

Minntu á bann við utanvegaakstri áður en þau óku sjálf utanvegar
Nýsjálenskir áhrifavaldar, sem segjast vekja athygli á umhverfismálum bentu fylgjendum sínum á að utanvegaakstur væri bannaður á Íslandi. Því næst héldu óku þau utanvegar við Mælifell.

Afskekkt hótelmæðgin vilja vegabætur á Ströndum strax
Mæðginin Eva Sigurbjörnsdóttir oddviti og Héðinn Birnir Ásbjörnsson, hótelhaldari á Hótel Djúpavík, krefjast þess að Alþingi forði "merkilegustu sveit landsins“ frá því að leggjast í eyði. Annað yrði ríkisstjórn undir foryst

„Finnst frekar ljótt og leiðinlegt að stofna einhverja hátíð á sama tíma og okkar hátíð er“
Framkvæmdastjóri Senu Live segir lélegt af forráðamönnum nýrrar tónlistarhátíðar að reyna að nýta sér vörumerki Airwaves til að selja bjór og mat.

Klakastykki féll á ferðamann við Seljalandsfoss
Ferðamaður slasaðist við Seljalandsfoss á fimmtudaginn í síðustu viku þegar klakastykki hrundi á hann úr berginu við fossinn.

Ef það er leiðindaveður þá getur maður ekki bara þagað
Höpp og glöpp nefnist bók eftir Ólaf B. Schram, sem áratugum saman hefur starfað við leiðsögn erlendra ferðamanna.

Áttu fótum fjör að launa þegar klakastífla brast
Myndband sem birt var á Vísi í vikunni þar sem sjá mátti klakastíflu bresta í Víðidalsá með þeim afleiðingum að áin steypti sér ofan í Kolugil hefur vakið mikla athygli. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem áin brýtur niður klakastíflu.

Vill auðvelda norðurljósaleitina á Íslandi
Smáforritinu Hello Aurora, sem ætlað er að auðvelda fólki að finna norðurljós, var ýtt úr vör á dögunum.

Síðasta skipið í haust fór í gær
Samtals 183.107 farþegar komu til Íslands með skemmtiferðaskipum á þessu ári. Síðasta skip sumarsins sigldi úr Sundahöfn eftir miðnætti í fyrrinótt.

Einn milljarður geti orðið að tíu
Það að engu fjármagni sé áætlað til uppbyggingu Akureyrarflugvallar sem millilandaflugvallar í drögum að samgönguáætlun næstu fimm ára gengur þvert gegn yfirlýstri stefnu stjórnvalda. Þetta er mat framkvæmdastjóra Markaðsstofu Norðurlands.

Aufúsugestir að austan
Arnar Steinn Þorsteinsson fjallar um kínverska ferðamenn á Íslandi. Hann telur núning og jafnvel pirring út í þá munu hverfa, enda séu þeir oft byggðir á misskilningi og ákveðnu þekkingar- og reynsluleysi í samskiptum við Kínverja.

Kex Hostel tapaði 182 milljónum
Árið áður nam tapið 58 milljónum króna. Eigið fé fyrirtækisins var neikvætt um 28 milljónir króna við árslok.

60 prósenta munur á tilboðum í útsýnispallinn á Bolafjalli
Fjögur tilboð bárust Bolungarvík í smíði og uppsetningu útsýnispalls á Bolafjalli. Tilboðin voru opnuð í Ráðhúsi Bolungarvíkur í gær.

Ólafur Laufdal með fimm stjörnur: Hátindinum náð
Hótel Grímsborgir í Grímsnes og Grafningshreppi er orðið að fimm stjörnu hóteli. Ólafur Laufdal er eigandi hótelsins. Hann segir að með stjörnunum fimm, sem hátindinum náð.

Skítblankur á túristavertíð
Fyrir tveimur árum brotlenti rithöfundurinn Þórarinn Leifsson á Íslandi, fráskilinn og svo blankur að hann fór á ferðaþjónustuvertíð. Við Gullfoss rumskaði svo rithöfundurinn og í nýrri bók gerir hann upp heilt ár af Gullhringjum.

Vilja koma Hrísey á kortið
Stefnt er að því að blása til sóknar til þess að markaðssetja Hrísey sem áfangastað fyrir innlenda ferðamenn. Ný könnun sýnir að margir Íslendingar sjá ekki neina ástæðu til þess að heimsækja eyjuna.

„Bílamergð og kaos“ á norðurljósasýningu við Gróttu
Stífla myndaðist úti við Gróttu á Seltjarnarnesinu í gærkvöldi þar sem fjöldi fólks, að stórum hluta erlendir ferðamenn, söfnuðust saman til að njóta norðurljósanna.

Hyggjast fljúga til Íslands í vor
Kínverska flugfélagið Juneyao Air hyggst hefja flug frá Shanghaí til Íslands næsta vor. Ríkisflugfélagið Air China er einnig að skoða möguleika á flugi á milli Peking og Keflavíkur í gegnum Kaupmannahöfn.

Loo segist hafa farið að öllum reglum
Framkvæmdastjóri Iceland Igloo Village hefur starfsleyfi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands sem hann telur nægja til að til að leigja ferðamönnum hjólhýsi. Framkvæmdastjóri eftirlitsins segir að leyfið feli það ekki í sér, núverandi starfsemi sé ólögleg. Landeigendur hafa kært fyrirtækið.

Kaupendur Núps vilja höfða til fólks sem vill fara sér hægt
Félagið HérNú hefur keypt skólahúsin á Núpi í Dýrafirði af íslenska ríkinu.

Grjótfok splundraði rúðum bíla í Suðursveit
Fjöldi bíla skemmdur eftir storm morgunsins.

Hefur áhrif þegar flug raskast og í veikindum
Boðað yfirvinnubann flugmanna hjá Air Iceland Connect mun helst hafa áhrif þegar flug raskast með einhverjum hætti eða í veikindum þar sem yfirvinna er almennt ekki unnin hjá félaginu. Verkfallsaðgerðir eiga að hefjast 1. nóvember.

Ferðamannaborgin Reykjavík
Í samstarfi við helstu hagsmunaaðila vinnur Reykjavíkurborg nú að nýrri ferðamálastefnu, sem á að leiða veginn að Reykjavík sem spennandi áfangastað fyrir ferðamenn, í sátt við íbúa, atvinnulíf, umhverfi og menningu.

Ísland á lista yfir tíu bestu áfangastaðina í Evrópu
Ísland hefur síðastliðin ár orðið sífellt vinsælli áfangastaður ferðamanna og hafa Íslendingar sennilega orðið varir við það.