Sport

Aníta komin áfram

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Aníta hljóp á 2:02,44 mínútum.
Aníta hljóp á 2:02,44 mínútum. vísir/epa
Aníta Hinriksdóttir er komin áfram í undanúrslit í 800 metra hlaupi á EM í frjálsum íþróttum í Amsterdam.

Aníta hljóp í riðli 1 í undanrásunum og endaði í 4. sæti af sjö keppendum.

Aníta kom í mark á 2:02,44 mínútum, 0,84 sekúndum á eftir sigurvegaranum, hinni frönsku Renelle Lamote. Besti tími Anítu í greininni er 2:00,49 mínútur.

Aníta keppir í undanúrslitunum á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×