Heimir í viðræðum við Færeyjarmeistarana Tómas Þór Þórðarson skrifar 25. október 2017 22:51 Heimir Guðjónsson gæti þjálfað erlendis. Vísir/Ernir
Heimir Guðjónsson, fyrrverandi þjálfari FH, gæti verið á leið til Færeyja en hann hefur átt í viðræðum við Færeyjarmeistara Víkings í Götu. Þetta kemur fram á færeyska fréttamiðlinum In.fo en Sámal Erik Hentze, þjálfari Víkinga, lét af störfum eftir tímabilið sem kláraðist um síðustu helgi. Víkingur tapaði 2-1 fyrir EB/Streym í lokaumferðinni en varð meistari í Færeyjum annað árið í röð á betri markatölu en KÍ úr Klakksvík sem hafnaði í öðru sæti. Heimir stýrði liði FH til sigurs á Færeyjar-Víkingunum í forkeppni Meistaradeildarinnar í ár og segir í frétt færeysku síðunnar að það sé ekki óhugsandi að Íslendingurinn taki við sem þjálfari liðsins. Heimir er atvinnulaus eftir að hann var rekinn frá FH sem hann gerði fimm sinnum að Íslandsmeistara á þeim tíu árum sem hann stýrði liðinu enn. Hann var í herbúðum FH frá aldamótum, fyrst sem leikmaður, síðar aðstoðarþjálfari og svo aðalþjálfari. Ekkert starf er laust í Pepsi-deildinni þar sem þau lið sem létu sína þjálfara fara eru búin að fylla í skörðin.
Íslenski boltinn Mest lesið Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Enski boltinn Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Fótbolti Er annar hestur kominn í hlaupið um heimsmeistaratitilinn? Formúla 1 Cody Gakpo orðaður við Manchester City Enski boltinn Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Íslenski boltinn Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Fótbolti Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Fótbolti „Maður var aldrei alveg rólegur“ Íslenski boltinn Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Enski boltinn Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Íslenski boltinn Fleiri fréttir Baulað á Alvarez hjá Atletico Madrid Cody Gakpo orðaður við Manchester City „Maður var aldrei alveg rólegur“ Harvey Elliott virðist ekki vera hluti af framtíð Liverpool Ísak Andri nálgast sænsku úrvalsdeildina Chelsea sigldi sigrinum heim eftir að hafa náð forystu eftir 30 sekúndur Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Dybala mataði þrennu fyrir Malen gegn Fiorentina Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa Newcastle að fá miðjumann Man. City Skutu flugeldum að áhorfendum Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“ Þorlákur tekinn til starfa í Sádi-Arabíu Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Reknu vinirnir mætast í London Myndi ekki sofa á nóttunni: „Enn þá bara sama gamla Tottenham“ Boltinn sem „hönd guðs“ snerti seldur á uppboði Býður sig ekki fram gegn Infantino en býst við mótframboði Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Liverpool og City muni ekki berjast um titilinn Sjáðu mörkin: Dramatík hjá Liverpool og City en hrun hjá Aston Villa „Verið að drekkja þeim í áhyggjum að þetta verði bara aftur sama sagan“ Emery bað Watkins um að útskýra fjarveru sína: „Það er spurning fyrir hann“ Salah skoraði fyrstu mörkin fyrir Trabzonspor Hófu titilvörnina með fimm marka sigri Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Sjá meira