Viðskipti erlent

Fréttamynd

Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf

Donald Trump Bandaríkjaforseti undirritaði í dag forsetatilskipun sem felur í sér hundrað prósenta toll á innflutt lyf sem framleidd eru undir einkaleyfi. Framleiðendur geta komið sér hjá tollinum með því að semja við Bandaríkjastjórn um lægra verðlag eða skuldbinda sig til að framleiða lyfin innan Bandaríkjanna.

Viðskipti erlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fylgja for­dæmi Ís­lands og fara gegn vísindunum

Evrópu­sam­bandið fylgir for­dæmi Ís­lands og hefur heimilað of­veiði á makríl í Norður-Atlantshafi, þvert á ráð­leggingar vísinda­manna og Alþjóða­haf­rannsóknarráðsins. Fram­kvæmda­stjóri Icelandic Susta­ina­ble Fisheries lýsir áhyggjum af framtíð makríl­stofnsins og segir ljóst að með þessu áfram­haldi geti stofninn ekki endur­nýjað sig.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Á­rásum fjölgar og olíu- og gasverð rýkur upp

Íranir hafa gert þó nokkrar árásir á olíu- og jarðgasvinnsluinnviði í Mið-Austurlöndum í morgun. Yfirvöld í Sádi-Arabíu segja drónaárás hafa verið gerða á olíuvinnslustöð við Rauða hafið og ráðamenn í Kúveit segja elda hafa kviknað eftir árásir á tvær olíuvinnslur þar í landi í morgun. Einnig var gerð árás á stærstu jarðgasvinnslu heims í Katar í gær.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Rússíbanareið á mörkuðum vegna rangs tísts

Chris Wright, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, sendi olíumarkaði í enn eina sveifluna en gífurlegt flökt hefur verið á olíuverði undanfarna daga vegna stríðs Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran. Með einu tísti frá Wright féll verðið mjög hratt en í einungis nokkrar mínútur.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Paramount sigrar Netflix í bar­áttunni um Warner Bros.

Forsvarsmenn Netflix hafa ákveðið að segja þetta gott og ætla ekki að bæta tilboð félagsins í hluta Warner Bros. Discovery, eftir að stjórn WBD tilkynnti í kvöld að nýtt kauptilboð frá Paramount Skydance væri betra en tilboð Netflix sem stjórnin hafði áður samþykkt.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Davos-toppur hættir vegna Ep­stein-tengsla

Børge Brende sagði af sér sem forseti Alþjóðaefnahagsráðsins (WEF) í dag vegna sambands hans við Jeffrey Epstein, bandaríska kynferðisbrotamanninn. Brende þrætti upphaflega fyrir að hafa átt í samskiptum við Epstein en annað kom í ljós þegar bandarísk skjöl voru birt nýlega.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Í­huga að fresta út­gáfu PS6 um allt að tvö ár

Skortur og mikil verðhækkun á vinnsluminnisflögum, sem að mestu má rekja til gífurlegrar eftirspurnar frá gervigreindarfyrirtækjum, gæti leitt til þess að útgáfu næstu kynslóðar PlayStation-leikjatölvunnar verði frestað um allt að tvö ár. Forsvarsmönnum Sony hefur víst gengið illa að verða sér úti um svokallað Dram-vinnsluminni.

Viðskipti erlent
Fréttamynd

Hefja aftur við­ræður við Paramount

Forsvarsmenn Warner Bros. Discovery segja viðræður við eigendur Paramount Skydance um yfirtöku hafnar á nýjan leik. Það er eftir að eigendur Paramount hækkuðu kauptilboð sitt en fyrirtækið hefur staðið í baráttu við Netflix um að kaupa WBD eða hluta félagsins.

Viðskipti erlent