Erlent
317 318 319 320 321 322 323 324 325 … 334 ›
Fæðingartíðni aldrei lægri í Kína Fæðingartíðni í Kína, fjölmennasta landi heims, hefur aldrei verið lægri en hún var árið 2021. Aðgerðir yfirvalda hafa ekki snúið þróun undanfarinnar ára en hækkandi framfærslukostnaður í borgum landsins hefur fælt fólk frá barneignum. Erlent 17.1.2022 14:15
Hafa áhyggjur af tvíburafaraldri inflúensu og Covid-19 Inflúensan er snúin aftur til Evrópu og dreifist á ógnarhraða um álfuna, eftir heilt ár í hýði. Áhyggjur eru uppi um að faraldur innflúensu muni auka álag á heilbrigðiskerfi á meðan hann geisar á sama tíma og heimsfaraldur kórónuveiru. Erlent 17.1.2022 14:00
Senda hermenn og skriðdreka til Gotlands Yfirvöld í Svíþjóð hafa ákveðið að fjölga hermönnum og vopnum á Gotlandi í Eystrasaltshafi. Ástæðan er sögð vera versnandi öryggisástand á svæðinu sem að miklu leyti má rekja til mögulegrar innrásar Rússa í Úkraínu. Erlent 17.1.2022 13:00
Einræðissonurinn fær að bjóða sig fram til forseta Einræðisherrasonurinn Ferdinand Marcos yngri fær að bjóða sig fram til forseta Filippseyja þrátt fyrir að hafa verið dæmdur fyrir skattsvik, á meðan hann var í opinberu embætti. Erlent 17.1.2022 11:18
Lög til að gera óbólusettum lífið leitt taka gildi á næstu dögum Neðri deild franska þingsins samþykkti í gær aðgerðir ríkisstjórnar landsins gegn faraldri Kórónuveirunnar en þar á meðal eru hertar aðgerðir gegn óbólusettu fólki í landinu. Tekinn verður upp bólusetningarpassi og verður óbólusettum meinaður aðgangur að veitingastöðum, leikvöngum, öðrum samkomum og opinberum vettvangi. Erlent 17.1.2022 11:13
Notuðu dróna til að sprengja olíubíla í loft upp Þrír olíuflutningabílar sprungu í morgun í loft upp á flugvellinum í Abu Dhabi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Bílarnir eru sagðir hafa verið sprengdir í loft upp með litlum drónum sem flogið var að þeim. Erlent 17.1.2022 10:35
Skutu eldflaugum í fjórða sinn á mánuði Tveimur eldflaugum var skotið á loft frá frá Norður-Kóreu í nótt. Eldflaugunum var skotið frá flugvellinum í Pyongyang, höfuðborg einræðisríkisins einangraða en þetta var í fjórða sinn á einungis mánuði sem sambærilegar tilraunir eru gerðar. Erlent 17.1.2022 09:35
Fyrrverandi forseti Malí er látinn Ibrahim Boubacar Keita, fyrrverandi forseti Malí sem komið var frá völdum af her landsins árið 2020 eftir sjö ára valdatíð, er látinn. Keita var 76 ára gamall. Erlent 17.1.2022 08:54
Átta milljónir Englendinga stunda áhættusama drykkju Milljónir Breta neyta nú áfengis í hættulegu magni heima hjá sér. Ástæðuna má að einhverju leyti rekja til þess að fleiri drekka nú heima en á öldurhúsum vegna kórónuveirufaraldursins. Erlent 17.1.2022 08:41
Hafa áhyggjur af drykkjarvatni á Tonga vegna öskufalls Miklar áhyggjur eru uppi um að vatn á eyjaklasanum Tonga verði ódrykkjarhæft vegna öskufalls frá neðansjávareldgosi sem hófst í eldfjallinu Hunga Tonga Hunga Ha'apai á laugardag. Erlent 17.1.2022 08:36
Unglingar í Manchester handteknir í tengslum við gíslatökuna í Texas Tveir unglingar í Manchester á Englandi voru handteknir af sérsveitarmönnum í gærkvöldi, grunaðir um tengsl við gíslatöku í bænahúsi gyðinga sem átti sér stað í Texas í Bandaríkjunum á laugardag. Erlent 17.1.2022 06:54
Ástralir og Nýsjálendingar senda vélar til Tonga til að kanna tjónið Flugvélar hafa verið sendar af stað frá Ástralíu og Nýja Sjálandi til að leggja mat á tjónið á Tonga eyjaklasanum eftir neðansjávareldgosið öfluga sem orsakaði flóðbylgju á eyjunum. Erlent 17.1.2022 06:45
Tímamótabreytingar fram undan hjá BBC Fjárframlagakerfi til breska ríkisútvarpsins tekur miklum breytingum á allra næstu árum að sögn Nadine Dorries, menningarmálaráðherra Bretlands, sem kynnti framtíðaráætlanir ríkisstjórnarinnar í dag. Afnotagjöld breska ríkisútvarpsins verða felld niður eftir fimm ár. Erlent 16.1.2022 23:38
Tonga-eyjar orðnar eins og tunglið Á Tonga-eyjaklasanum er umhorfs eins og á Tunglinu eftir gríðarlegt öskufall eftir neðanjarðareldgosið sem braust út í gær að sögn íbúa eyjanna. Þykkt öskulag hylur stóran hluta eyjanna alveg og hafa íbúar þeirra verið án rafmagns og símasambands síðan í gær. Erlent 16.1.2022 19:23
Höggbylgja frá Tonga mældist í Bolungarvík Eldgosið í neðansjávareldfjallinu Hunga Ha‘apai hefur kæft eyjaklasann í ösku. Fréttir frá eyjunum eru takmarkaðar en ekki hafa borist fregnir af dauðsföllum. Erlent 16.1.2022 16:54
Segir ellefu ára dóttur sína ekki mega mæta í skólann nema hún sé bólusett Íslendingur sem búsettur er í New York segir að hún megi ekki mæta til vinnu nema sýna fram á að hún sé bólusett. Þessi takmörkun tekur einnig til barna en ellefu ára dóttir hennar fær ekki að mæta í skólann nema bólusett. Erlent 16.1.2022 14:00
Lögmenn Andrésar vilja yfirheyra sálfræðing Giuffre og eiginmann Lögmenn Andrésar Bretaprins vilja fá að yfirheyra sálfræðing Virginiu Giuffre, sem hefur sakað prinsinn um nauðgun, og segja hana þjást af „fölskum minningum“. Erlent 16.1.2022 11:36
Jákvæð teikn á lofti í Lundúnum, New York og víðar Svo virðist sem að hægja sé á smitum sums staðar í Bretlandi og Bandaríkjunum. Hin margumrædda kúrfa er að fletjast út í Lundúnum, suðaustur- og austurhluta Englands og hægt hefur á greiningum í norðurhluta landsins. Erlent 16.1.2022 09:46
Kona deyr eftir að hafa verið hrint fyrir lest í New York Fertug kona lést í New York í gær þegar maður gekk upp að henni þar sem hún beið á neðanjarðarlestarstöðinni í Times Square og hrinti henni í veg fyrir lest. Erlent 16.1.2022 09:05
Harry freistar þess að fá að greiða fyrir lögregluvernd í Bretlandi Harry Bretaprins hefur farið fram á að dómstólar taki fyrir ákvörðun breska innanríkisráðuneytisins um að neita honum um að greiða fyrir lögregluvernd þegar hann og fjölskylda hans heimsækja Bretland. Erlent 16.1.2022 08:35
Gíslarnir lausir og byssumaðurinn látinn Bandaríska alríkislögreglan réðist inn í bænahús gyðinga Colleyville í nótt, tíu tímum eftir að maður tók fjóra einstaklinga þar í gíslingu. Byssumaðurinn er látinn en lögregla hefur ekki viljað gefa upp hvernig dauða hans bar að. Erlent 16.1.2022 07:47
Bandaríkin og Japan vara við flóðbylgju Yfirvöld í Bandaríkjunum og Japan hafa varað fólk við því að vera í nálægð við strendur Kyrrahafsins vegna hættu á að flóðbylgja skelli á þær. Flóðbylgja skall á höfuðborg eyríkisins Tonga í morgun vegna neðarsjávareldgoss sem hófst fyrr í morgun. Erlent 15.1.2022 22:37
Gíslataka í bænahúsi gyðinga í Dallas Vopnaður maður hefur tekið fólk gíslingu í bænahúsi gyðinga í Texas í Bandaríkjunum. Maðurinn segist vera vopnaður sprengjum og hafa tekið rabbína bænahússins og þrjár aðra gíslingu. Erlent 15.1.2022 21:18
Yfirvöld segja 225 hafa fallið í óeirðum í Kasakstan Yfirvöld í Kasakstan segja 225 hafa fallið í óeirðum í landinu í síðustu viku. Þar á meðal hafi verið 19 meðlimir öryggissveita. Líkamsleifar hinna föllnu voru fluttar í líkhús um landið allt í dag þar sem á að búa þau undir greftrun. Erlent 15.1.2022 21:08
Lögregla fær loks síma Baldwin Lögreglayfirvöld sem hafa dauða Halynu Hutchins til rannsóknar hafa nú loks fengið síma leikarans Alec Baldwin afhentan. Lögregla sagði í samtali við fjölmiðla fyrr í vikunni að leikarinn væri tregur til að afhenda símann en heimild lögreglu lá fyrir í desember. Erlent 15.1.2022 17:08
Myrti eiginkonuna til að hefja nýtt líf með viðhaldinu Tannlæknir í Bandaríkjunum er sakaður um að hafa myrt eiginkonu sína í því skyni að komast yfir tæpar fimm milljónir dollara, eða rúmar sex hundruð milljónir króna, í tryggingarfé. Erlent 15.1.2022 15:06
Ótrúlegt snarræði lestarstjóra: Maður hrinti konu fyrir lest Maður hrinti konu fyrir lest í Belgíu skömmu fyrir klukkan átta í gærkvöldi. Snarræði lestarstjóra varð til þess að konan slasaðist ekki, en honum tókst að stöðva lestina með naumindum. Erlent 15.1.2022 14:07
Fæddi „kraftaverkabarn“ í háloftunum Kona fæddi barn í flugi flugfélagsins Qatar á leið frá höfuðborginni Doha til Úganda í vikunni. Blessunarlega var læknir um borð sem tók á móti barninu. Móður og barni heilsast vel. Erlent 15.1.2022 10:35
Flóðbylgja skall á Tonga Flóðbylgja skall á höfuðborg eyríkisins Tonga í Kyrrahafi í morgun. Bylgjan var ekki nema rúmur metri á hæð og ekki er talið að neinn hafi látist í flóðbylgjunni. Erlent 15.1.2022 09:54
Segja Rússa undirbúa fölsun tilefnis til árásar Yfirvöld í Bandaríkjunum sökuðu í dag Rússa um að hafa sent sérstaka sveit hermanna til Úkraínu. Þeirra verk sé að skapa tilefni fyrir Rússa til að gera innrás í Úkraínu. Samhliða því eigir yfirvöld Rússlands í áróðursherferð sem ætlað sé að koma sök á mögulegum átökum á Úkraínumenn. Erlent 14.1.2022 22:31