Sport

„Þetta er þorpið manns“

„Þetta er bara ég með allar mínar tilfinningar utan á mér,“ segir María Edwardsdóttir, fjármálastjóri Þróttar, um ljósmynd af henni með bikarnum sem karlalið Þróttar vann sér inn á Laugardalsvelli síðustu helgi. Kvennalið Þróttar vann fyrsta titilinn í sögu félagsins viku fyrr á sama velli.

Íslenski boltinn

Haukur náði að hefna sín á Reyni Þór

Haukur Þrastarson og félagar í Rhein-Neckar Löwen náðu að hefna sín á Melsungen í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta karla í kvöld. Leikurinn endaði með 30-28 sigri Löwen en Melsungen vann liðið í framlengdum leik fyrr í vikunni.

Handbolti

„Það er bara á okkur að stíga upp núna“

Íslenska karlalandsliðið mætti Eistlandi í fyrstu umferð C-deild Þjóðardeildarinnar í dag. Það er óhætt að segja að úrslitin hafi verið mikil vonbrigði eftir 1-1 jafntefli á Laugardalsvelli í dag. Stefán Teitur Þórðarson ræddi við Sýn Sport eftir leik.

Sport

Lúxem­borg á toppi ís­lenska riðilsins

Á sama tíma og Ísland og Eistland mættust var annar leikur í riðlinum. Þar tók Búlgaría á móti Lúxemborg og enduðu gestirnir á því að vinna 2-1 sigur. Lúxemborg situr því á toppi fjórða riðils C-deildar Þjóðadeildarinnar.

Fótbolti

Stjórnar­for­maður Manchester City tjáir sig

Khaldoon Al Mubarak, stjórnarformaður Manchester City, hefur tjáð sig í fyrsta sinn opinberlega eftir að fréttir bárust af því í gær að Manchester City hafði verið fundið sekt í 114 af 115 ákæruliðum í máli sem enska úrvalsdeildin höfðaði gegn félaginu fyrir brot á fjármálareglum deildarinnar.

Enski boltinn

Upp­gjörið: ÍBV - Breiða­blik 1-2 | Blikar verma toppinn

Breiðablik vann mikilvægan 2–1 sigur á ÍBV á Hásteinsvelli í Bestu deild kvenna í dag eftir að hafa verið marki undir í hálfleik. Allison Patricia Clark kom Eyjakonum yfir en Agla María Albertsdóttir og Bryndís Arna Níelsdóttir tryggðu Blikum sigurinn með mörkum í síðari hálfleik. Með sigrinum tryggði Breiðablik sér þrjú mikilvæg stig í titilbaráttunni og komst í 43 stig á toppi deildarinnar. ÍBV situr áfram í þriðja sæti með 30 stig.

Íslenski boltinn

Ringul­reið hjá Heimi og leikur við Ís­rael í upp­námi

Mikil óvissa er uppi varðandi leik Írlands við Ísrael í Þjóðadeild UEFA á morgun. Blaðamannafundi Heimis Hallgrímssonar var frestað, hans lið hefur enn ekki mætt til æfinga og það berast af því óstaðfest tíðindi að leikmenn séu hættir við að gefa kost á sér í leikinn.

Fótbolti

Inter­netið gerir grín að Caleb Williams

„Ég hélt náttúrulega að hann hefði slitið hásin,“ segir Eiríkur Stefán Ásgeirsson, einn af sérfræðingum Lokasóknarinnar, um meiðsli sem leikstjórnandi Chicago Bears, Caleb Williams, varð fyrir í síðasta leik liðsins.

Sport