Erlent

Ríkið gefur 150 milljónir

Miðað við höfðatölu hefur hver Íslendingur gefið átta hundruð og tuttugu krónur til að lina þjáningar bágstaddra eftir hamfarirnar á annan jóladag við Indlandshaf. Heildarupphæð íslenskra framlaga er komin í 240 milljónir króna. Munar þar mestu um framlag ríkisstjórnarinnar, alls 150 milljónir sem samþykkt var á föstudag. Rauði Kross Íslands hefur safnað um áttatíu milljónum króna hjá almenningi og fyrirtækjum. Ríkisstjórnin samþykkti á fundi sínum á föstudag að bæta sex milljónum við þær fimm milljónir sem þegar höfðu verið af hendi raktar í þá söfnun og Reykjavíkurborg lagði til tíu milljónir. Hjálparstarf kirkjunnar hefur safnað hálfri fimmtu milljón, SOS barnahjálp einni milljón og Barnavernd hálfri. tveimur milljónum. Samtals eru því framlög hjálparstofnana og ríkissjóðs á Íslandi 240 milljónir króna. Ef litið er til Norðurlanda hafa Íslendingar látið minna af hendi rakna en Norðurlandaþjóðirnar að Svíum undanskildum. Norðmenn eru gjafmildastir með rúmlega 2500 krónur á mann og eru næst rausnarlegasta þjóð heims á eftir Áströlum. Framlög okkar eru heldur lægri miðað við höfðatölu en  Íslendingar látið af hendi rakna minna fé en Dana og Finna, um það bil 1.000 krónur á mann, en talsvert meira en Svíar með 500 krónur á mann. Athygli vekur að auðugasta ríki heims, Bandaríkin er neðst á lista með aðeins 72 krónur á mann. Aðeins Frakkar láta minna af hendi rakna miðað við höfðatölu eða 57 krónur. Reyndar versnar enn samanburðurinn ef tillit er tekið til þess að Evrópusambandið greiðir rúma 38 milljarðar króna til neyðaraðstoðar og uppbyggingar á hamfarasvæðunum. Vonir standa til að framlög Íslands eigi eftir að hækka umtalsvert. Elín Þ. Þorsteinsdóttir, verkefnisstjóri söfnunarinnar "Neyðarhjálp úr norði" segir að ekki sé stefnt að því að ná neinni ákveðinni fjárhæð inn í söfnuninni en vonir standi til að góður árangur náist enda ætli öll hjálparsamtök að leggjast á eitt. Söfnunin nær hámarki með beinum útsendingum allra sjónvarpsstöðva laugardagskvöldið 15. janúar.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×