Sport

Gautaborg sækir á Djurgården

IFK Gautaborg sigraði Malmö 2-1 í sænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi og saxaði þar með á forystu Djurgården. Þegar þrjár umferðir eru eftir hefur Djurgarden 46 stig, IFK Gautaborg 43 og Malmö 38 í þriðja sæti. Alfonso Alves skoraði mark Malmö í leiknum en hann er nú markahæstur í sænsku úrvalsdeildinni ásamt Eyjamanninum Gunnari Heiðari Þorvaldssyni, báðir hafa skorað 13 mörk. Tveir aðrir leikir voru í sænsku úrvalsdeildinni í gærkvöldi. Landskrona vann Örgryte 1-0 og Hammarby sigraði Assyeriska 3-0.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×