Enginn hefur lýst yfir ábyrgð 13. júlí 2006 07:00 Lestin vöktuð Öryggisgæsla hefur verið hert til muna í öllum borgum Indlands. Myndin er tekin í Kalkútta. MYND/AP
Sérfræðingar leituðu í gær að vísbendingum í rústum lestarvagna sem sprungu í loft upp í átta sprengjum á háannatíma í Mumbai (Bombay) á Indlandi á þriðjudag. Svo virðist sem sprengjunum hafi verið komið fyrir á farangursgrindum í lestunum, en þær urðu yfir 200 manns að bana og særðu fleiri en 700. Enginn hryðjuverkahópur hefur lýst ábyrgðinni á hendur sér. Talsmenn tveggja herskárra hópa í Kasmír-héraði neituðu aðild að sprengjunum og fordæmdu þær. Talsmenn Indlandsstjórnar létu hafa eftir sér í gær að sprengjurnar væru of þróaðar fyrir Kasmír-hópana, og töldu líklegra að um öfgasinnaða múslimahópa væri að ræða. Forsætisráðherra Indlands, Manmohan Singh, lýsti því yfir í gær að „enginn myndi knésetja Indland,“ og hvatti landa sína til að sýna samstöðu. Unnið var hörðum höndum að viðgerðum og þrifum og voru samgöngur komnar í nokkurn veginn samt lag í gærdag, þó færri íbúar nýttu sér lestirnar en venjulega. Öryggisgæsla hefur verið hert til muna í öllum borgum Indlands. Sextán milljónir manna búa í Mumbai.
Erlent Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Telja sig vita hvernig maðurinn lést Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Fleiri fréttir Tekið tíma að bera kennsl á illa farin lík Létu Cassie lesa upp kynferðisleg skilaboð til Diddy „Við getum ekki hlaupið um heiminn í leit að Pútín“ Undirbúa að verja mun meira til varnarmála Hnattræn hlýnun nær í skottið á einni af perlum Patagóníu ESB tapar máli um samskipti von der Leyen og Pfizer-forstjóra Vill gera Gasa að „frelsissvæði“ Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Alþjóðaglæpadómstóllinn lamaður vegna þvingana Bandaríkjanna Loftárásir héldu áfram og segja enn harðari árásir framundan Hvorki Pútín né Trump ætla á fund Selenskí „Fátækasti forseti heims“ látinn Einn lifði rúmlega hundrað metra fall af og gekk eftir hjálp Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Tugir sagðir liggja í valnum eftir loftárásir Fingrafar leiddi til handtöku hálfri öld eftir morð Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Trump hitti Sýrlandsforseta í Sádi-Arabíu Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Tveir frambjóðendur myrtir á nokkrum dögum Hóta að standa í vegi „fallegs“ frumvarps Mætir ræningjunum í fyrsta sinn Segja ekki hvort Pútín ætli að hitta Selenskí Sakfelldur fyrir að hafa beitt konur kynferðisofbeldi Staðfesta ábyrgð Rússa á því að malasíska þotan var skotin niður Trump með verri ímynd á heimsvísu en Xi og Pútín Sláandi tölur um aflýst flug til Nuuk-flugvallar Málverk af Grænlandi undir stjórn Trumps vekur athygli „Táknrænt sterk“ forysta Grænlands hefst í dag Sjá meira