Þrjátíu ár liðin frá uppþotunum í Soweto í Suður Afríku 16. júní 2006 17:41 Mynd/AP
Þrjátíu ár eru liðin frá uppþotunum í Soweto í Suður Afríku sem urðu kveikjan að andstöðu við aðskilnaðarstefnuna sem síðan leið undir lok árið 1991. Þeirra var minnst með fjölmennri göngu um götur borgarinnar í dag. Rúmlega þúsund manns tóku þátt í göngunni í Soweto í dag með Thabo Mbeki, forseta Suður-Afríku fremstan í flokki. Gengið var um hverfi, sem einungis voru byggð fyrir svarta á tímum aðskilnaðarstefnunnar.Meira en fimm hundruð manns létu lífið í mótmælunum sextánda júní 1976 eftir að lögregla hóf skothríð á mótmælendur sem flestir voru ungir námsmenn. Margir leiðtogar námsmannanna voru einnig handteknir eða reknir í útlegð. Námsmenn voru að mótmæla því að einungis væri kennt á Afrikaan sem var opinbera tungumálið þegar aðskilnaðarstefnan var í gildi, þegar lögreglan hóf skothrýð á þá.Masando borgarstjóri sagði í dag að uppþotin í Soweto hefðu markað mikilvæg þáttaskil í lífi svartra Suður-Afríku búa og hefðu að mörgu leyti verið kveikjan að almennri uppreisn gegn aðskilnaðarstefnunni.Mokoena, einn af leiðtogum mótmælagöngunnar 1976 sagði í dag, að hann sæi gönguna fyrir þrjátíu árum ljóslifandi fyrir sér. Hann sagði jafnframt að sú ganga hefði verið enn hátíðlegri en í dag, eða þar til lögreglan hóf að skjóta á óvopnaða námsmennina sem margir hverjir voru með friðarmerki á lofti.
Erlent Fréttir Mest lesið Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ Sjá meira