Hvað sagði Marco Materazzi? 10. júlí 2006 13:56 Mynd mótsins. Zinedine Zidane gengur niðurlútur af velli framhjá HM styttunni eftir að hann fékk rauða spjaldið í gær AFP
Miklar vangaveltur hafa nú staðið yfir í allan dag um hvað það var sem varnarmaðurinn Marco Materazzi hjá ítalska landsliðinu sagði við Zinedine Zidane í úrslitaleiknum á HM í gærkvöldi, sem varð þess valdandi að Zidane réðist á hann og skallaði hann. Menn sem tengjast Zidane vilja lítið tjá sig um málið, en þó eru einhverjir sem telja sig vita hvað Materazzi sagði við hann. Zidane hefur alfarið neitað að tjá sig um málið, enda hefur hann eflaust nóg að gera við að sætta sig við að hafa misst stjórn á skapi sínu í síðasta landsleik sínum með franska landsliðinu - sjálfum úrslitaleiknum á HM. Umboðsmaður Zidane segist hafa rætt við hann í gærkvöld og segir miðjumanninn hafa gefið þá skýringu að hann hefði misst stjórn á sér vegna einhvers sem Materazzi lét út úr sér, en vill ekki gefa upp hvað það er. Heimildamenn í Frakklandi halda því fram að Materazzi hafi sagt eitthvað um móður Zidane, en það hefur ekki fengist staðfest. "Ég veit ekki hvað Materazzi sagði, en þó Zidane sé ýmsu vanur, var þetta eitthvað sem fyllti mælinn hjá honum. Hann er mjög leiður yfir þessu atviki og vildi sannarlega ekki enda feril sinn á þennan hátt," sagði umboðsmaðurinn.
Erlendar Fótbolti Íþróttir Mest lesið „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Íslenski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Íslenski boltinn Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Íslenski boltinn Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Njarðvíkingar sömdu við David Okeke og kveðja Fotios Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona Kimi vann í Texas en þarf að bíða í viku til að verða heimsmeistari „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Martin öflugur þegar Alba Berlin endaði taphrinuna Katla tryggði Fiorentina sigur Stýrði Gummersbach til sigurs á einu af toppliðunum „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Ómar Ingi og félagar nálgast toppsætið eftir sigur á Hauki Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Bræður bættu stigamet pabba þeirra Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór Árni Ágúst grátlega nálægt því að bæta met Emin Kadri heldur áfram að vera ósigraður Sjá meira