Heimsmeistarinn handleggsbrotinn 27. september 2006 18:38 Sebastien Loeb verður ekki með í Tyrklandi þann 13. október AFP
Vonir heimsmeistarans Sebastien Loeb um að vinna sinn þriðja titil í röð í rallakstri hafa nú minnkað til muna eftir að kappinn datt af baki fjallahjóli sínu í Sviss með þeim afleiðingum að hann handleggsbrotnaði. Loeb hefur reyndar 35 stiga forskot í stigakeppni ökumanna, en ljóst þykir að hann muni missa af Tyrklandsrallinu sem fram fer um miðjan næsta mánuð. Alls eru 12 af 15 mótum ársins þegar búin og í raun nægir honum að koma einu sinni í viðbót í mark á undan sínum helsta keppinaut - eða hafna í fjórða sæti ef Grönholm sigrar - til að tryggja sér þriðja titilinn í röð. Loeb hefur þegar fest sig í sessi sem einn besti ökuþór allra tíma í rallinu og hefur enginn unnið fleiri sigra en hann í sögunni. Næsta keppni eftir Tyrklandsrallið er í Ástralíu um mánaðarmótin október-nóvember og standa vonir manna til þess að hann verði búinn að jafna sig fyrir þann tíma. Loeb er 32 ára gamall og ekur fyrir Kronos Citroen.
Erlendar Íþróttir Mest lesið Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Fótbolti Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Íslenski boltinn Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Handbolti Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Íslenski boltinn Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja Sport Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Íslenski boltinn Heimsmeistari hélt að hún væri með tíðaverki en endaði á sjúkrahúsi Sport Fleiri fréttir Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Þarf að draga sig úr keppni í undanúrslitum Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Örn tekur við karlaliði Selfoss Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Vandræðaleg auglýsing og köld kveðja Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Stuðningsmannahópar Celtic vilja ekki fá Keane Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu Heimsmeistari hélt að hún væri með tíðaverki en endaði á sjúkrahúsi HM-minning: Tapið sem fékk alla Brasilíu til að gráta og banna búninginn Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ „Verður svolítið hissa á því hversu mikil áhrif þetta mun hafa á líf hans“ Allur leikmannahópurinn saman í þjóðsöngvunum Andrea býr hjá breskri fjölskyldu sem styður hana til sigurs Þrjár opnunarhátíðir á HM og stórstjörnur á þeim öllum Dagskráin í dag: Formúlan í Mónakó fer af stað Sjá meira