Skuldasúpa Grikklands mun verri en talið var 15. nóvember 2010 10:32
Samkvæmt tölum sem Eurostat, hagdeild ESB, birti í morgun er skuldasúpa Grikklands mun verri en áður var talið. Hve mikið verri hún er kemur sérfræðingum samt ekki á óvart. Eurostat segir að fjárlagahalli Grikklands á síðasta ári hafi numið 15,4% af landsframleiðslu en ekki 13,6% eins og stjórnvöld í Grikklandi höfðu lýst yfir. Þar með er fjárlagahallinn sá mesti meðal evruríkja en næst á eftir kemur Írland með halla upp á 14,4% af landsframleiðslu. Þá kemur fram í tölum Eurostat að erlendar skuldir Grikklands nema nú tæpum 127% af landsframleiðslu. Grísk stjórnvöld hafa hingað til haldið því fram að skuldirnar væru 115% af landsframleiðslu. Í frétt um málið á börsen.dk segir að sérfræðingar hafi átt von á þessum tölum og jafnvel óttast að Grikkir væru með fleiri lík í lestinni en þessar tölur gefa til kynna.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira