Hætta á danskri bjórkreppu um helgina 7. maí 2010 14:49 Í frétt um málið í Jyllands Posten er haft eftir Jens Bekke fjölmiðlafulltrúa Carlsberg fyrir Norður-Evrópu að sökum þessa verkfalls nú hafi nýjar bjórbirgðir ekki verið keyrðar út til vesturhluta Danmerkur.
Starfsmenn í stærstu brigðastöð Carlsberg bruggverksmiðjanna í Danmörku er í verkfalli að nýju eftir tvo daga að störfum. Sökum þess er hætta á að bjórþyrstir Danir í hluta af landinu fái ekki uppáhalds sopann sinn um helgina. Í frétt um málið í Jyllands Posten er haft eftir Jens Bekke fjölmiðlafulltrúa Carlsberg fyrir Norður-Evrópu að sökum þessa verkfalls nú hafi nýjar bjórbirgðir ekki verið keyrðar út til vesturhluta Danmerkur. Hinsvegar sé búið að keyra út 14 daga birgðir til annarra landshluta. Starfsmenn birgðastöðvarinnar hafa átt í langvinnri vinnudeilu við Carlsberg. Þeir hafa farið í verkfall áður og endurtóku leikinn í dag. Um er að ræða 500 starfsmenn í stöðinni sem staðsett er í Fredericia en þaðan er bjórinn keyrður út um alla Danmörku. Deilan er kominn í hnút eftir að Carlsberg neitaði að hækka laun starfsmannana um svo mikið sem eina krónu, danska. Stjórn Carlsberg vill ekki halda samningaviðræðum áfram fyrr en starfsmennirnir hefja vinnu að nýju. Því hafa starfsmennirnir hafnað í dag.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Viðskipti innlent Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira