Fékk 18 milljarða í laun fyrir að tapa 257 milljörðum 19. nóvember 2010 13:12
Fjárfestingabankinn Merrill Lynch sagði bless og takk fyrir við Stanley O´Neal forstjóra sinn eftir mesta ársfjórðungtap bankans í tæplega aldarlangri sögu hans árið 2007. O´Neal fékk 160 milljónir dollara eða 18 milljarða kr, að launum fyrir að tapa 2,3 milljörðum dollara eða um 257 milljörðum kr. Forbes tímaritið segir frá þessu. O´Neal fékk 30 milljónir dollara í starfslokasamning auk 129 milljónum dollara í hluta- og skuldabréfum að launum frá bankanum eftir þetta risatap. Í Forbes segir að væntanlega í ljósi 21 árs starfsferils O´Neal hjá Merrill Lynch hafi honum verið leyft að segja upp störfum sínum í stað þess að vera rekinn úr stöðu sinni. Þar með hélt hann sérstökum lífeyrissparnaði sem starfsmönnum bankans bauðst. Fjármálakreppan gerði það svo að verkum að Bank of America yfirtók Merrill Lynch í ársbyrjun á síðasta ári.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira