Lego selst fyrir milljarða Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. september 2010 12:33
Velta Lego jókst um 34% á fyrstu sex mánuðum ársins, eða úr 4,4 milljörðum danskra króna á fyrri helmingi ársins í fyrra í 5,9 milljarða á fyrri helmingi þessa árs. Því lætur nærri að veltan á fyrri helmingi þessa árs hafi numið 118 milljörðum íslenskra króna. Hagnaðurinn jókst líka úr 927 milljónum danskra króna í 1,5 milljarð á fyrri helmingi þessa árs. Stjórnendur Lego í Danmörku eru að vonum ánægðir með þennan árangur. „Við gleðjumst yfir því að það er vöxtur á öllum okkar mörkuðum," segir Jørgen Vig Knudstorp, framkvæmdastjóri Lego, í fréttatilkynningu sem business.dk segir frá. Einkum er vöxtur á mörkuðum í Bandaríkjunum og austurhluta Evrópu. Mikil aukning er í sölu á hefðbundnum vörulínum eins og Lego City, Duplo, Star Wars og tæknilegó. Lego var stofnað í Billund í Danmörku árið 1932.
Mest lesið Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Viðskipti erlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira