Lars von Trier selur þekktan húsbíl sinn 16. febrúar 2011 14:40
Danski leikstjórinn Lars von Trier hefur sett þekktan húsbíl sinn til sölu á eBay. Leikstjórinn vill fá 150.000 dollara eða 17,5 milljónir kr. fyrir gripinn þótt hann sé orðinn meir en tíu ára gamall. Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að Trier hafi ætíð þjáðst af flughræðslu og því hafi hann notað bílinn m.a. til að keyra þúsundir kílómetra í hvert sinn sem hann þurfti að fara á kvikmyndahátíðina í Cannes í suðurhluta Frakklands. Húsbíllinn er keyrður 120.000 km og er með svefnpláss fyrir fjóra. Hann er sagður í ágætu ásigkomulagi. Trier segir í auglýsingu sinni á eBay að það verði léttir fyrir hann að losna við lyktina af díselolíu. Hann vonar að væntanlegur kaupandi hafi ekkert á móti díselolíulykt því slíkri olíu hefur oft verið hellt á gólf bílsins. Eins og kunnugt er hefur Lars von Trier meðal annars leikstýrt Björk í mynd sinni Dancer in the Dark.
Mest lesið Þúsund manna hátíðir ekkert mál en ein lítil kónguló skelfileg! Atvinnulíf Ölgerðin hækkar verðin Neytendur Segir sjaldan hafa verið auðveldara að vera fyrsti kaupandi Neytendur Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Viðskipti innlent Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Viðskipti innlent Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Viðskipti innlent Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Viðskipti innlent Kynntust í janúar og kynna nýja lausn fyrir matvælaframleiðendur Atvinnulíf Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Bora eftir jarðhita á Tenerife ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Meiriháttar truflanir á greiðslumiðlun á Norðurlöndum Verðmætasta fyrirtæki heims slær enn eitt metið Kröfum Musks gegn OpenAI hafnað Hefur „nær engar áhyggjur“ af eldsneytisskorti Einkaþotuflug jókst á sama tíma og eldsneytisverð rauk upp GameStop vill kaupa eBay Einn ríkasti maður Noregs látinn Lággjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Sjá meira