Skoðun

Við færum þér dugnað, gáfur og gæsku

Um miðjan september hleypti VR nýrri herferð af stokkunum sem vakið hefur mikla athygli. Herferðin snýst um að að beina sjónum almennings að því óréttlæti sem kynbundinn launamunur er en auk auglýsingar, sem hefur látið mörgum bregða í brún, þá skoraði VR á fyrirtæki að gefa konum 10% afslátt í nokkra daga til að sýna fram á hversu afkáralegt þetta misrétti væri.

Viðbrögðin létu ekki á sér standa og m.a. kærði ungur maður formann VR til jafnréttisráðs. Hann vildi ekki una því að vera mismunað, jafnvel ekki í 5 daga af 365 dögum ársins, og ég held að flestar konur skilji afstöðu hans vel. Ég vænti mikils af þessum unga manni í framtíðinni í baráttu fyrir réttlæti og jafnrétti.

Greiðvikni, hugvit og blómstrandi æskuMeð herferðinni hefur VR tekist að koma af stað nýjum krafti í umræðu um launamál kynjanna. Ég heyrði af kaffistofuspjalli um daginn þar sem yfirmaður fullyrti við undirmenn að innan deildar þeirra væri launajafnrétti og hann væri þess meðvitaður að mismuna ekki kynjum. Þetta viðhorf er til fyrirmyndar og væri óskandi að fleiri stjórnendur settust yfir launamál starfsmanna sinna og hefðu það markmið að mismuna ekki konum í launum.

Ég efast samt ekki um að ef yfirmenn væru spurðir að því hvort þeir mismunuðu starfsfólki sínu í launum eftir kynjum þá myndu flestir svara því neitandi. Samt sitjum við uppi með þennan óútskýrða launamun og veltum fyrir okkur hvað sé til ráða.

Ég bæti við tálsýn töfra og vonaÉg skora á konur að flykkjast til yfirmanna sinna og fara fram á 10% launahækkun. Til að fá raunhæfan samanburð á launum í starfsgreinum er hægt að kanna meðallaun á heimasíðu VR. Samkvæmt kjarasamningum eiga launþegar rétt á launaviðtali árlega en launakönnun VR sýndi að þeir sem fara í slíkt viðtal eru að meðaltali með 20.000 króna hærri mánaðarlaun en hinir sem ekki gera það.

Sækjum þessar prósentur og losum þjóðfélagið við þennan skammarblett sem kynbundinn launamunur er. Dætur okkar eiga ekki að fá þá arfleifð frá okkar kynslóð að þurfa sætta sig við: „… og talsverðan launamun af því þú ert kona“.




Skoðun

Sjá meira


×