Fótbolti

Milito með fernu fyrir Inter | AC Milan tapaði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Diego Milito skoraði fjögur í snjókomunni í kvöld.
Diego Milito skoraði fjögur í snjókomunni í kvöld. Nordic Photos / AFP
AC Milan mistókst að komast upp í efsta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar í kvöld en liðið tapaði fyrir Lazio, 2-0, í Róm. Inter og Palermo gerðu 4-4 jafntefli í fjörugum leik.

Juventus heldur því toppsætinu en leik liðsins gegn Parma í gær var frestað í gær vegna snjókomu. Mikill kuldi hefur verið á Ítalíu í vikunni og þurfti að fresta þremur leikjum í kvöld af sömu ástæðu.

Anderson Hernanes og Tomasso Rocchi skoruðu mörk Lazio gegn AC Milan í kvöld en liðið er því enn í öðru sæti deildarinnar með 43 stig, einu á eftir Juventus. Lazio er í fjórða sætinu með 39 stig.

Udinese er enn í þriðja sætinu eftir 2-1 sigur á Lecce. Michele Pazienza og Antonio Di Natale skoruðu mörk Udinese í kvöld.

Mesta fjörið var þó í leik Inter og Palermo. Bæði lið komust tvívegis yfir í leiknum en Argentínumaðurinn Diego Milito skoraði öll mörk Inter í kvöld, þar af eitt úr vítaspyrnu. Fabrizio Miccoli skoraði þrennu fyrir Palermo.

Úrslit kvöldsins:

Cagliari - Roma 4-2

Lazio - AC Milan 2-0

Inter - Palermo 4-4

Napoli - Cesena 0-0

Udinese - Levve 2-1

Leikjum sem var frestað:

Atlanta - Genoa

Bologna - Fiorentina

Siena - Catania




Fleiri fréttir

Sjá meira


×