Viðskipti erlent

Ekkert lát á verðhækkunum á áli

Heimsmarkaðsverð á áli heldur áfram að hækka og er komið yfir 2.100 dollara á tonnið miðað við þriggja mánaða framvirka samninga á markaðinum í London.

Verðið fór yfir 2.000 dollara markið í síðustu viku og hafði þá ekki verið hærra síðan í lok september s.l.

Raunar tók verðið töluverða dýfu í miðjum september þegar það stóð í rúmlega 2.100 dollurum og fór lægst í tæpa 1.900 dollara í lok október.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×