Bitcoin viðskiptajöfrar handteknir Fanney Birna Jónsdóttir skrifar 27. janúar 2014 17:09 Skjáskot af vefsíðunni Silkroad. Vísir/Wikipedia
Bandaríkjamenn hafa handtekið tvo stjórnendur gjaldeyrisskipta með sýndargjaldeyririnn Bitcoin. BBC greinir frá þessu. Dómsmálaráðuneytið hefur gefið út að Robert Faiella, þekktur sem BTCKing og Charlie Shrem frá BitInstant.com hafi báðir verið ákærðir fyrir peningaþvætti. Yfirvöld ytra segja að mennirnir tveir hafi ætlað sér að selja yfir eina milljón punda, jafnvirði tæplega 200 milljóna íslenskra króna, af Bitcoin-myntinni til notenda eiturlyfjasölusíðunnar Silk Road. Síðunni var lokað á síðasta ári og meintur eigandi hennar handtekinn. Shrem var handtekinn á sunnudag á JFK flugvelli í New York en Faiella í dag, mánudag, heima hjá sér í Flórída. Shrem er stofnandi og varaformaður Bitcoin Foundation sem hefur reynt að stuðla að notkun Bitcoin sem gjaldmiðils. Hann stofnaði bar í New York á síðasta ári sem tók við Bitcoin í vöruskiptum. BitInstant er einn af stærstu gjaldeyrisskiptasíðum með Bitcoin á internetinu.Vísir sagði frá því í október í fyrra að Silk Road vefsíðan, sem var eitt stærsta fíkniefna-markaðssvæði á internetinu, hafi notað íslensk gagnaver til að fela slóð sína.
Mest lesið Uggandi yfir afstöðu VR Viðskipti innlent Sonur Kristjáns í hans stað á hvalveiðiráðstefnu Viðskipti innlent Stýrivextir áfram átta prósent Viðskipti innlent Eru ríkisskuldabréfasjóðir öruggir? Viðskipti innlent Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Viðskipti erlent Vill að þak verði sett á álagningu olíufélaga Viðskipti innlent Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Viðskipti erlent Aukin skattheimta og aukin samkeppni í boði ríkisins Viðskipti innlent Nýir veitingastaðir opnaðir á Hilton Reykjavík og Hótel Reykjavík Öskju Viðskipti innlent Bein útsending: Rökstyðja stýrivaxtaákvörðun sína Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tölvuþrjótarnir hafi ekki komist yfir kortanúmer Notendur ASOS fá tilkynningu frá meintum tölvuþrjótum Paramount og Warner Bros. heyra brátt sögunni til G7 setja hundrað milljón tunnur á markaðinn Olíuflæðið nálgast fyrra horf en verð lækkar ekki OpenAI hættir við að gefa út nýtt „svikult“ líkan Japanskir stýrivextir ekki eins háir í þrjátíu ár Hækkuðu stýrivexti í Bandaríkjunum í fyrsta skipti í þrjú ár Olíubirgðir að klárast og krísa líkleg Ákall gervigreindarrisa: Eina sem gervigreindin þurfi sé „sterkur og snjall forseti“ Novo hættir að vera Nordisk Opinbera sinn fyrsta langloku-iPhone og boða verðhækkanir Útlit fyrir lökustu vínframleiðslu í tæp sjötíu ár Greiða 4,3 milljarða vegna sölu persónuupplýsinga ChatGPT virkar á ný Flytja gull frá Bandaríkjunum og Kanada af öryggisástæðum Setja gjald á hraðtískuvörur Apple fær nýjan forstjóra Vilja skapa hvata til að beina sparnaði Evrópubúa í fjárfestingar Sjá meira