Íslenski boltinn

Leiknismenn nálgast Pepsi-deildina | Myndir

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Úr leik Leiknis og KA.
Úr leik Leiknis og KA. Vísir/Arnþór
Leiknir vann enn einn sigurinn í 2-1 seiglusigri á KA í 1. deildinni í kvöld. Leiknir er með 11 stiga forskot á HK í þriðja sætinu þegar sex leikir eru eftir.

Heimamenn fengu sannkallaða draumabyrjun þegar Hilmar Árni Halldórsson kom Leikni 1-0 yfir eftir átta mínútna leik og bætti Sindri Björnsson við öðru marki um miðbik seinni hálfleiks.

Arsenij Buinickij minnkaði muninn fyrir KA í upphafi seinni hálfleiks en lengra komust gestirnir ekki og unnu Leiknismenn því góðan sigur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×