Formaður Midtjylland: Við erum litlir en getum unnið Man. United Tómas Þór Þórðarson skrifar 14. desember 2015 18:00 Strákarnir í Midtjylland fagna sæti í 32 liða úrslitum Evrópudeildarinnar. vísir/getty
Danmerkurmeistarar Midtjylland drógust gegn Manchester United í 32 liða úrslitum EVrópudeildarinnar og mætast liðin heima og að heiman þegar keppnin heldur áfram í febrúar. Midtjylland hefur staðið sig stórkostlega í Evrópudeildinni á þessu tímabili, en í forkeppninni skellti það enska liðinu Southampton. Í riðlakeppninni náði liðið svo öðru sæti í D-riðli og var þar á undan stórliðum frá Belgíu og Póllandi; Club Brugge og Legíu Varsjá. Rasmus Ankersen, stjórnarformaður Midtjylland, þekkir vel til á Englandi eftir að sinna sama starfi hjá Brentford. Hann leyfir sér að vera bjartsýnn fyrir leikina en er þó mjög raunsær. „Við erum lítið lið með lítið fjármagn. Við getum ekki unnið lið með því að eyða meira þannig við þurfum að úthugsa mótherja okkar og það höfum við gert vel í Evrópudeildinni hingað til,“ segir Ankersen í viðtali við BT Sport. Manchester United er í miklu basli þessa dagana en liðið er án sigurs í síðustu fimm leikjum og tapaði gegn nýliðum Bournemouth í úrvalsdeildinni um síðustu helgi. „Það er ekki mikill séns að við vinnum Manchester United en það er hægt og við erum tilbúnir í baráttuna. Við erum búnir að vinna annað enskt lið nú þegar í keppninni þannig við erum klárir í slaginn,“ segir Rasmus Ankersen.
Evrópudeild UEFA Mest lesið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Íslenski boltinn Felldu og afklæddu styttur af fótboltamönnum Sport Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Íslenski boltinn Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Enski boltinn Er búinn að glíma við þunglyndi Fótbolti Ögmundur laus allra mála hjá Val Íslenski boltinn „Þetta hefur verið ótrúlega erfitt“ Sport „Stúkan er of þögul“ Fótbolti Jelena kölluð inn í landsliðið Fótbolti Fleiri fréttir Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ HM-minning: Þegar Norður-Kórea komst lengra en Brasilía á HM Vardy sýnir myndir frá innbrotinu á heimilið Listamaður lögsækir FIFA fyrir að mála yfir myndina sína Norðmenn mæta með nýja útgáfu af Víkingaklappinu á HM í sumar Manchester United kaupir Ederson Ný rangstöðutækni á HM Samkomulag náðst milli Iraola og Liverpool John Barnes greindist með krabbamein Wales jafnaði metin í lokin Sjá meira