Meistarastimpillinn er erfiður Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 1. maí 2015 08:00 Atli Guðnason. vísir/stefán
FH-ingum var í fyrradag spáð sigri í Pepsi-deildinni í sumar en FH-liðið fékk langflest stig í árlegri spá fyrirliða, þjálfara og forráðamanna. Fimm síðustu ár og í sjö skipti af síðustu átta hafa meistaraefnin fallið á prófinu og misst af Íslandsmeistaratitlinum um haustið. Þannig fór fyrir KR-ingum í fyrra sem og í tvö síðustu skipti sem FH-ingum hefur verið spáð titlinum um vorið (2011 og 2013). FH var líka síðasta liðið sem stóð undir pressunni en FH-ingar urðu Íslandsmeistarar undir stjórn Heimis Guðjónssonar sumarið 2009 eftir að hafa verið spáð titlinum fyrir mótið. FH-liðið frá 2013 er líka eina liðið, frá og með þeim tíma þegar fyrst voru tólf lið í deildinni sumarið 2008, sem tókst að vinna sinn leik í fyrstu umferð eftir að hafa verið spáð meistaratitlinum. FH hefur sex sinnum áður verið spáð titlinum og staðið undir meistarapressunni í þrjú af þessum skiptum. Liðið kláraði titilinn 2005, 2006 og 2009 en missti af honum 2007, 2011 og 2013. Það ætti svo sem ekki að koma FH-ingum á óvart að vera spáð Íslandsmeistaratitlinum enda hefur Hafnarfjarðarliðið verið efst í þessari árlegu spá á öllum oddaárum frá og með 2005. Stjarnan varð Íslandsmeistari í fyrra þrátt fyrir að vera aðeins spáð fjórða sætinu fyrir mótið. Þetta var aðeins í fimmta sinn í þrjátíu ára sögu spárinnar þar sem meistararnir komust ekki inn á topp þrjú í spánni. Stjörnumenn komust þar í hóp með KA (spáð 5. sæti 1989), Víkingi (4. sæti, 1991), ÍA (5. sæti, 2001) og KR (4.sæti, 2002) sem urðu öll Íslandsmeistarar þrátt fyrir að vera neðar en í þriðja sæti í spánni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Chelsea vann upp tveggja marka forskot á St James' Park Enski boltinn „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ Handbolti Skírði soninn LFC og Mac Allister lét draum feðganna rætast Enski boltinn Man. City - West Ham | Bláklæddir geta tyllt sér á toppinn Enski boltinn Varði fjórar vítaspyrnur með brotna hendi Fótbolti Fleiri fréttir Elías mættur til meistaranna KR sagt vera að landa Arnóri Ingva Hilmar Árni til starfa hjá KR Segir fjórðung í bók Óla ósannan Víkingur í úrslit Bose-bikarsins eftir sigur „Verið heiður að spila í appelsínugulu með frábærum liðsfélögum“ Þekkir Egilshöllina vel og skoraði gegn fyrrum félögum Strákar Heimis Guðjóns fengu slæman skell í fyrsta leik Axel verður áfram hjá Aftureldingu Kveður pabba sinn í Laugardalnum og fer til FH „Félag sem var í basli með að ná endum saman og greiða laun á réttum tíma“ Skrýtið og taktlaust: „Ég er ekkert sátt með niðurstöðuna“ Fanndís kveður sviðið: „Ég er búin að fella nokkur tár“ Gylfi með tvö og Víkingar byrja á sigri Frá Akureyri til Danmerkur Markadrottningin heldur að landsliðið sé búið spil Strákarnir í 2. flokki Vals þeir einu sem ekki spila fyrir áramót Dæturnar vildu norður: „Mun alltaf gera allt fyrir þær“ Stjarnan sækir markvörð í 3. deildina „Ég var orðinn algjörlega bugaður“ Jónatan áfram á Hlíðarenda: „Var alltaf jákvæður fyrir því að framlengja“ Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull „Ég elska þig Ísland, takk fyrir allt!“ Sextán ára með fernu fyrir meistara Víkings Valur dregur sig úr Bose-bikarnum „Sagði bara við hann: Djöfulsins fíflið þitt“ Yngir upp í allt of gamalli deild Þróttur keypti Adam Árna frá Grindavík Ástæðan fyrir því að Þorlákur hætti: „Ég var ekki hrifinn af þessu“ Þorlákur sagði upp störfum hjá ÍBV Sjá meira