Þjálfari Anítu bjartsýnn fyrir EM í Svíþjóð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 29. júní 2015 06:00 Aníta Hinriksdóttir freistar þess að verja Evrópumeistaratitil sinn 19 ára og yngri á EM í Svíþjóð í næsta mánuði. fréttablaðið/getty
Margt af sterkasta frjálsíþróttafólki Íslands úr röðum ungmenna atti kappi við jafnaldra sína á sterku móti í Mannheim í Þýskalandi um helgina. Aníta Hinriksdóttir á góðar minningar frá mótinu sem hún vann þrjú ár í röð auk þess sem hún setti Íslandsmet sitt í 800 m hlaup þar árið 2013. Aníta varð þó að sætta sig við silfur að þessu sinni eftir að hafa misst keppanda frá Belgíu, Rene Eykens, fram úr sér við marklínuna. Aníta hljóp á 2:02,57 mínútum sem er rúmum tveimur sekúndum frá Íslandsmeti hennar. „Hlaupið var býsna sterkt,“ sagði Gunnar Páll Jóakimsson, þjálfari hennar, í samtali við Fréttablaðið. „Það voru tveir mjög sterkir keppendur með henni og þær voru leitandi eftir því hver myndi taka af skarið. Sú þýska [Sarah Schmidt, sem varð þriðja] er oft fljót af stað en gerði það ekki nú. Fyrri hringurinn var því mjög hægur – hægari en sá síðari sem er ekki algengt. Síðari hringurinn var hins vegar mjög góður.“ Gunnar Páll segist sáttur við hlaupið hjá Anítu þrátt fyrir að hún hafi misst Ekens fram úr sér við marklínuna. „Síðustu 200 metrarnir hjá henni voru sterkir og ég er mjög bjartsýnn fyrir Eskilstuna,“ segir hann en þar fer EM ungmenna fram 16.-19. júlí. Aníta mun þar verja Evrópumeistaratitil sinn 19 ára og yngri í greininni.Tvö ár frá Íslandsmetinu Eins og kom fram fyrir helgi missti Aníta úr nokkrar æfingar eftir að hafa fengið í lærið á Evrópumóti landsliða í Búlgaríu auk þess sem að kuldakastið í byrjun júní gerði allar æfingar erfiðari. „Þar að auki sneri hún sig á ökkla fyrir nokkrum dögum en hún vill nú helst ekkert tala um það sjálf. En hún er aðeins bólgin,“ segir Gunnar Páll sem ætlar að nýta tímann fram að EM eins vel og kostur er. „Nú eru loksins góðar aðstæður til að hlaupa heima,“ sagði hann í léttum dúr. „Þetta er tími sem verður notaður til að laga sig og bæta.“ Eftir að Aníta bætti Íslandsmetið í Mannheim árið 2013 varð hún bæði Evrópumeistari 19 ára og yngri og heimsmeistari 17 ára og yngri. En þrátt fyrir að hún hafi ekki bætt sinn besta árangur í greininni í tvö ár hefur Gunnar Páll ekki áhyggjur. „Hún náði hrikalega miklum framförum árið 2013 og hefði verið hægt að stilla aðstæður þannig að hún hefði getað bætt sig í fyrra. Þetta snýst um að fá réttu hlaupin,“ segir þjálfarinn. „Hún hóf svo tímabilið mjög vel í maí og hefði verið gott að fá tvö góð hlaup við kjöraðstæður í júní til að nýta það. En þetta er allt á réttri leið hjá henni.“Bætti sex ára gamalt met Þrír aðrir íslenskir keppendur voru á mótinu í Mannheim. Tristan Freyr Jónsson bætti sig í 200 m hlaupi utanhúss sem og 110 m grindahlaupi. Það hljóp Tristan Freyr á 14,24 sekúndum og bætti um leið sex ára Íslandsmet Einars Daða Lárussonar í flokki 18-19 ára. Hilmar Örn Jónsson og Vigdís Jónsdóttir kepptu í sleggjukasti. Hilmar Örn varð þriðji með 76,31 m eftir harða samkeppni við tvo keppendur í fremstu röð en hann var um tíma í forystu. Gera má ráð fyrir því að þessir þrír blandi sér í baráttuna um verðlaun á EM í Svíþjóð. Vigdís Jónsdóttir kastaði lengst 51,21 m sem er þó nokkuð frá hennar besta.
Frjálsar íþróttir Mest lesið „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Enski boltinn „Dóri verður að hætta þessu væli“ Íslenski boltinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ Íslenski boltinn Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur Sport Bað um að grátandi krakka yrði vísað af vellinum Sport Ronaldo trúlofaður Fótbolti Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Íslenski boltinn Ingibjörg seld til Freiburg Fótbolti Gunnlaugur byrjar vel á móti þar sem til mikils er að vinna Golf Enska augnablikið: Sá allra svalasti Enski boltinn Fleiri fréttir Fegin að hvítir leikmenn Englands klikkuðu líka á vítum Ronaldo trúlofaður Ræddu lætin í Krikanum: „Það er helvítis hundur í Heimi“ Slóvenskt undrabarn skoraði 23 mörk gegn Noregi Sjáðu frábærar afgreiðslur Sigurðar Bjarts, vítavörslur Árna og endurkomu KR-inga Gunnlaugur byrjar vel á móti þar sem til mikils er að vinna „Dóri verður að hætta þessu væli“ Ingibjörg seld til Freiburg Bað um að grátandi krakka yrði vísað af vellinum Enska augnablikið: Sá allra svalasti Toppurinn á ferlinum hingað til en getur gert betur „Öllum í ensku úrvalsdeildinni er illa við Man United“ Dagskráin í dag: Allskonar fótbolti Bale af golfvellinum og á skjáinn Hákon Rafn gæti fengið sénsinn „Óreyndir dómarar sem falla í þessa gryfju“ „Leyfa því að koma og nýta það á góðan hátt sem orku“ „Var farinn að krampa upp í öllum vöðvum líkamans“ Heimir og Dean sendir í sturtu eftir læti á hliðarlínunni Donnarumma skilinn eftir heima Kolbeinn tryggði stigin þrjú Uppgjörið: FH - ÍA 3-2 | Ótrúleg endurkoma heimamanna í Kaplakrika Uppgjörið: KR - Afturelding 2-1 | Mosfellingar í fallsæti eftir tap í Vesturbænum Tap setur Ísland í erfiða stöðu Spánn skiptir þjálfaranum út Með fyrsta þrjátíu tuttugu leikinn í sögu WNBA Fengu loksins leyfi til að spila spænskan deildarleik í Miami Enska augnablikið: Hlaupið út úr húsinu Ótryggður Giannis tekur ekki þátt í undirbúningi Grikklands Klappað fyrir fyrstu konunni sem dæmdi í MLB Sjá meira