Viðskipti erlent

Nítján ára stúlkan frá Noregi sem er yngsti milljarðamæringur heims

Bjarki Ármannsson skrifar
Alexandra Andresen er bráðefnilegur knapi sem metinn er á 150 milljarða íslenskra króna.
Alexandra Andresen er bráðefnilegur knapi sem metinn er á 150 milljarða íslenskra króna. Myndir/Instagram-síða Alexöndru
Hin nítján ára Alexandra Andresen frá Noregi er yngsti milljarðamæringur heims samkvæmt tímaritinu Forbes. Hún kemst inn á lista tímaritsins yfir milljarðamæringa heimsins í fyrsta sinn nú í ár.

Auðæfi Alexöndru eru tilkomin vegna hluts hennar í fjölskyldufyrirtækinu Ferd. Fyrirtækið á rætur sínar að rekja til þess þegar langalangalangaafi Alexöndru kom á laggirnar tóbaksframleiðslufyrirtæki sem var það stærsta í landinu í hálfa aðra öld.

Alexandra er nýskriðin úr menntaskóla í heimalandinu og virðist að því er Forbes greinir frá hafa lítinn áhuga á því að fylgjast með störfum fyrirtækisins. Í staðinn ver hún tíma sínum á hestbaki, en hún þykir með efnilegustu knöpum Noregs og hefur unnið til verðlauna á mótum víðsvegar um Evrópu.

Sjá einnig: Björgólfur Thor hækkar um nærri 300 sæti á Forbes-listanum

Hlutur Alexöndru í fyrirtækinu er metinn á 1,2 milljarða Bandaríkjadala, rúmlega 150 milljarða íslenskra króna. Jafnstóran hlut á eldri systir hennar, Katharina, sem stundar leggur stund á félagsvísindanám við Háskólann í Amsterdam.

Þrátt fyrir að vera metnar á rúman milljarð Bandaríkjadala hvor, hafa systurnar þar til nýlega náð að lifa tiltölulega eðlilegu lífi. Þær rötuðu fyrst í fjölmiðla við sautján ára aldur en þá voru skattaframtöl þeirra gerð opinber. Katharina greindi frá því í viðtali við norska sjónvarpsstöð að hún hefði fengið fimm hundruð nýjar vinabeiðnir á Facebook eftir að fyrst var greint frá auðæfum hennar.


Tengdar fréttir

25 ára og metinn á 270 milljarða

Evan Spiegel, stofnandi snjallsímaforritsins Snapchat, er yngsti maðurinn á lista tímaritsins Forbes yfir ríkasta fólkið í Bandaríkjunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×