Körfubolti

Jakob stigahæstur í tapi

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Jakob skoraði 14 stig og hitti vel.
Jakob skoraði 14 stig og hitti vel. vísir/valli
Jakob Örn Sigurðarson var stigahæstur í liði Borås Basket sem tapaði með 11 stigum, 81-70, fyrir Norrköping Dolphins á útivelli í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta í kvöld.

Jakob lék í rúmar 35 mínútur og skoraði 14 stig. Hann tók einnig tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar.

Jakob hitti vel í leiknum í kvöld en fimm af níu skotum hans utan af velli rötuðu rétta leið. Þá nýtti Jakob þrjú af fjórum vítum sínum.

Jakob, sem er fyrirliði Borås, er með 12,6 stig, 3,7 fráköst og 1,8 stoðsendingu að meðaltali í leik í vetur.

Borås er í 4. sæti sænsku deildarinnar með 12 stig eftir 11 umferðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×