Stelpurnar hennar Elísabetar unnu en landsliðsmarkvörðurinn er áfram á bekknum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. maí 2017 18:54 Sif Atladóttir. Vísir/Getty
Tvö Íslendingalið, Kristianstad og Limhamn Bunkeflo 07, fögnuðu sigri í sænska kvennafótboltanum í dag en landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur ekki getað spilað í síðustu leikjum Djurgården sem tapaði 4-1 í dag.Stelpurnar hennar Elísabetar Gunnarsdóttur í Kristianstad unnu langþráðan og mikilvægan sigur á Piteå í sænsku úrvalsdeildinni í dag. Kristianstad vann leikinn 1-0. Piteå var sjö sætum ofar í töflunni og Kristianstad hafði ekki unnið leik í næstum því mánuð. Þessi sigur var því ekki bara langþráður heldur sendu stelpurnar hennar Elísabet frá sér sterk skilaboð um að þær ætla sér meira en það sem liðið hefur verið sýna í byrjun móts. Hanna Sandström skoraði sigurmark Kristianstad á 58. mínútu leiksins. Sif Atladóttir lék allan leikinn í vörninni en Kristianstad var þarna að halda marki sínu hreinu annan leikinn í röð eftir að hafa markalaust jafntefli við Hammarby í síðasta leik.Anna Björk Kristjánsdóttir og félagar í Limhamn Bunkeflo 07 unnu 2-1 útisigur á Hammarby en þetta var annar sigur liðsins í röð og sá þriðji í síðustu fjórum leikjum. Anna Björk var allan leikinn í miðri vörn nýliðanna sem eru komnir upp í sjötta sæti deildarinnar.Landsliðsmarkvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir sat áfram á varamannabekknum þegar Djurgården steinlá 4-1 á útivelli á moti Vittsjö. Hin 19 ára gamla Petra Kumin hélt stöðu sinni í markinu. Guðbjörg er að glíma við meiðsli en var á bekknum. Hallbera Guðný Gísladóttir var hinsvegar í liðinu og spilaði allan leikinn. Mia Jalkerud skoraði eina mark liðsns og minnkaði muninn þá í 3-1. Finnska landsliðskonan Linda Sällström skoraði þrennu fyrir Vittsjö á fyrstu sextán mínútum leiksins. Hallbera skapaði mörg færi með flottum hornspyrnum sínum en því miður skilaði ekkert þeirra marki.
EM 2017 í Hollandi Fótbolti Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn Komin sjö mánuði á leið en spilar samt á Opna bandaríska Golf Fleiri fréttir Grikkir gerðu Svíum grikk á lokasekúndum leiksins Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Óvíst hver tekur við af Schmeichel Sara Björk snýr heim í Hauka FIFA tók U-beygju og bannar vatnsflöskur „Eins og fjölskylda í sólarlandaferð“ Stelpurnar okkar hálfa leið á HM með sigri „Þetta voru ótrúlegir dagar, en líka alveg magnaðir dagar“ „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val HM-minning: Leið yfir móður hans þegar hún fékk fréttirnar Jelena kölluð inn í landsliðið Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Forsetaframbjóðandi lofar að kaupa Haaland en faðirinn svarar Chelsea-goðsögnin Bobby Tambling látinn Er búinn að glíma við þunglyndi Nottingham Forest hafnar tilboði Manchester City „Stúkan er of þögul“ ÍBV riftir samning Filip Stuparevic Tryggði sigurinn með glæsimarki Danir andlausir gegn Kongó Lofar nýjum stjörnuleikmanni í Real Madrid á morgun Vill nota Liverpool-strákinn í annarri stöðu en hann er vanur Messi æfði einn viku fyrir Íslandsleikinn „Það er tilfinningaþrungið að kveðja Old Trafford“ Á að endurvekja þungarokksfótboltann og ánægjuna á Anfield „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira