Tekjulisti BBC yfir hæstlaunuðu starfsmennina sýnir mikinn launamun kynjanna Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 19. júlí 2017 17:24 Gary Lineker er einn best launaði starfsmaður BBC samkvæmt tekjulistanum. vísir/getty
Tekjulisti sem Breska ríkisútvarpinu, BBC, var gert að birta yfir hæstlaunuðu starfsmenn stofnunarinnar sýnir mikinn launamun kynjanna. Þannig er aðeins einn þriðji af þeim 96 starfsmönnum BBC sem eru á listanum konur og sjö efstu á listanum eru karlar. Fjallað er um málið á vef Guardian en þar kemur fram að hæstlaunaði starfsmaður BBC er Chris Evans, þáttastjórnandi bílaþáttarins Top Gear en hann fékk 2,2 milljónir punda í laun á síðasta ári eða sem samsvarar um 300 milljónum króna á gengi dagsins í dag. Gary Lineker, fyrrverandi knattspyrnumaður og þáttastjórnandi fótboltaþáttarins Match of the Day, er með 1,75 milljónir punda í árslaun.Aðeins tvær konur með yfir 400 þúsund pund en tólf karlar 96 leikarar, þáttastjórnendur, fréttamenn og álitsgjafar sem fá meira en 150 þúsund pund í árslaun eru á listanum. BBC barðist gegn því að listinn yrði birtur, meðal annars vegna þess að hann myndi koma af stað launaskriði í fjölmiðlaheiminum, en ríkisstjórnin gerði stofnuninni að birta listann. Eins og áður segir leiðir listinn í ljós mikinn launamun kynjanna hjá BBC. Aðeins tvær konur fá meira en 400 þúsund pund í laun hjá BBC, þær Claudia Winkleman sem stýrir þættinum Strictly Come Dancing, og Alex Jones, þáttastjórnandi One Show, en alls eru tólf karlmenn með meira en 400 þúsund pund í árslaun. Laura Kuenssberg, ritstjóri stjórnmála hjá BBC, er með á milli 200 og 250 þúsund pund í árslaun, miðað við 300 til 350 þúsund punda árslaun Eddie Mair sem stýrir útvarpsþættinum PM. Þá fær íþróttafréttamaðurinn Clare Balding 150 til 200 þúsund pund í árslaun, sem er um tíundi af launum Gary Lineker og lægra en íþróttafréttamennirnir John Inverdale og Jason Mohammad sem þéna meira en 200 þúsund pund og 250 þúsund pund á ári.Nánar má lesa um málið á vef Guardian.
Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira