Trump las fyrir misvísandi yfirlýsingu sonar síns

Washington Post greinir frá því í kvöld að Trump hafi sjálfur lesið fyrir yfirlýsingu sem sonur hans og nafni sendi síðar frá sér um fund hans með rússneskum lögmanni í júní árið 2016.
Þetta hefur blaðið meðal annars eftir ráðgjöfum hans og öðrum ónafngreindum heimildamönnum sem þekkja til málsins.
Trump greip í taumana
Ráðgjafar Trump höfðu viljað að Trump yngri gæfi út yfirlýsingu um fundinn sem New York Times hafði þá verið að hnýsast fyrir um. Sú yfirlýsing ætti að vera sannleikanum samkvæm þannig að ekki væri hægt að hrekja hana síðar ef frekari staðreyndir kæmu ljósi.
Í forsetaflugvélinni á leið heim af G20-fundinum í Þýskalandi í byrjun júlí greip forsetinn sjálfur hins vegar í taumana og las fyrir yfirlýsingu.
Í henni sagðist Trump yngri aðallega hafa rætt um ættleiðingar við rússneska lögmanninn. Hann þurfti þó síðar ítrekað að breyta frásögn sinni af fundinum eftir því sem fjölmiðlar greindu frekar frá efni og leikendum fundarins.
Síðar kom í ljós að auk Trump yngri voru Jared Kushner, tengdasonur forsetans, og Paul Manafort, þáverandi kosningastjóri hans, viðstaddir fundinn. Þeim hafði verið lofað skaðlegum upplýsingum um Hillary Clinton sem átti að vera liður í herferð rússneskra stjórnvalda til að hjálpa Trump í forsetakosningunum.
Gætu leitt líkum að því að forsetinn hafi reynt að hylma yfir
Ekki hefur áður verið greint frá þætti Trump forseta í málinu. Ráðgjafar forsetans eru sagðir hafa áhyggjur af því að hann hafi teflt sjálfum sér í óþarfa hættu með því að gefa sjálfur fyrirmæli um hvernig yfirlýsingin skyldi hljóma.
„Þetta var...óþarfi. Nú getur einhver haldið því fram að hann sé sá sem reyni að afvegaleiða. Einhver gæti haldið því fram að forsetinn sé að segja að hann vilji ekki að þú segir allan sannleikann,“ segir ónafngreindur ráðgjafi Trump við blaðið.
Sérstakur rannsakandi dómsmálaráðuneytisins rannsakar nú meint samráð forsetaframboðs Trump við rússnesk stjórnvöld ásamt nokkrum þingnefndum Bandaríkjaþings.
Tengdar fréttir

Segist ekki hafa sagt pabba sínum
Donald Trump yngri, sonur Bandaríkjaforseta, segist ekki hafa sagt föður sínum frá fundi sem hann átti með rússneskum lögfræðingi sem taldi sig geta aðstoðað við að sigra í forsetakosningunum í Bandaríkjunum í fyrra.

Trump yngri kallaður fyrir þingnefnd
Formaður nefndarinnar, Chuck Grassley, sagði blaðamönnum í dag að Paul Manafort, fyrrverandi kosningastjóri Trump eldri, yrði einnig kallaður fyrir nefndina.

Fyrrverandi njósnari Sovétríkjanna var einnig á fundi Trump yngri
Maðurinn er grunaður um að tengjast enn leyniþjónustum austan hafs.

Þingnefnd krefur kosningastjóra Trump um opinberan framburð
Fyrrverandi kosningastjóri Donalds Trump sem sat umdeildan fund með rússneskum lögfræðingi sem bauð skaðlegar upplýsingar um Hillary Clinton gæti neyðst til að bera vitni fyrir opnum dyrum hjá bandarískri þingnefnd. Formenn nefndarinnar hafa stefnt honum til að knýja hann til að mæta.

Tengdasonur Trump kemur fyrir þingnefnd
Búist er við að spurningar um samskipti við rússneska embætismenn og athafnamenn verði efst á baugi þegar Jared Kushner, tengdasonur og helsti ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, kemur fyrir þingnefnd í dag. Yfirheyrslurnar fara fram fyrir lokuðum dyrum og verður framburður Kushner ekki eiðsvarinn.

Kushner sver af sér samráð við Rússa
Tengdasonur Donalds Trump segist ekki hafa haft neitt samráð við rússneska embættismenn í aðdraganda forsetakosninganna í fyrra og segist ekki kunnugt um að neinn annar sem starfaði við framboðið hafi gert það. Hann ber vitni um tilraunir Rússa til að hafa áhrif á kosningarnar fyrir luktum dyrum þingnefnda í dag og á morgun.

Rússnesk stjórnvöld hafi ætlað að hjálpa Trump
Bandaríska stórblaðið New York Times fullyrðir í frétt í dag að Donald Trump yngri, syni Bandaríkjaforseta, hafi verið sagt að upplýsingar sem rússneskur lögmaður bauð honum, væru hluti af skipulegum aðgerðum rússneskra stjórnvalda sem áttu að hjálpa föður hans að sigra forsetakosningarnar í fyrra.

Trump yngri í vörn vegna fundarins með rússneska lögfræðingnum
Donald Trump yngri, sonur Donald Trump Bandaríkjaforseta, heldur áfram að svara fyrir sig í kjölfar fregna af fundi hans með rússneska lögfræðingnum Nataliu Veselnitskaya.

„Ég elska það“: Trump yngri birtir tölvupóstana
Í póstunum segir berum orðum að fundurinn sé til að koma upplýsingum í þeirra hendur sem gætu skaðað framboð Hillary Clinton og að það sé liður í aðgerðum stjórnvalda Rússlands til að styðja framboð Trump.

Var lofað skaðlegum upplýsingum um Clinton
Donald Trump yngri lofað skaðlegum upplýsingum um Hillary Clinton á fundi sínum með rússneskum lögfræðing.

Donald Trump yngri hitti rússneskan lögfræðing fyrir kosningarnar
Í ljós hefur komið að sonur Bandaríkjaforseta hitti fyrir rússneskan lögfræðing á síðasta ári.

Áttundi gesturinn á fundi Trump yngri nafngreindur
Balber sagði jafnframt að hann hefði greint frá nafni Kaveladze að beiðni fulltrúa Robert Mueller.

Trump segir soninn opinn og saklausan
Bandaríkjaforseti segir son sinn verða fyrir barðinu á nornaveiðum. Trump yngri sagði föður sínum ekki frá fundi sem er sagður hluti af stuðningi Rússlandsstjórnar við framboð föður hans.