Beverly Young Nelson segist hafa verið sextán ára gömul og verið að vinna sem gengilbeina þegar Moore hafi reglulega komið á veitingastaðinn sem hún var að vinna á. Þar hafi hann oft hrósað henni fyrir útlit hennar, daðrað við hana og snert á henni hárið.
Eitt kvöld hafi hann boðist til þess að aka henni heim úr vinnu hennar, sem hún þáði. Á blaðamannafundi nú í kvöld sagði Nelson að hún hefði þáð farið þar sem Moore hefði verið saksóknari á þeim tíma.
„Þú ert bara krakki og ég er saksóknari“
Hún segir hann þó hafa stoppað bílinn í húsasundi og læst honum. Því næst hafi hann káfað á henni og reynt að þvinga hana til munnmaka. Þegar það gekk ekki segir Nelson að hann hafi sagt við hana: „Þú ert bara krakki og ég er saksóknari. Ef þú segir einhverjum frá þessu mun enginn trúa þér“ og sleppt henni úr bílnum.
Nelson segist ekki vera á eftir því að Moore verði ákærður né ætli hún sjálf að höfða mál gegn honum. Það eina sem hún vilji sé að bera vitni fyrir þingnefnd og undir eiðstaf. Þannig vill hún þvinga Moore til að svara fyrir ásakanirnar sem hafa verið lagðar fram gegn honum.
Kosið verður um öldungadeildarsæti Alabama þann 12. desember. Jeff Sessions skildi það eftir sig þegar hann varð dómsmálaráðherra. Roy Moore er frambjóðandi Repúblikanaflokksins og hafa æðstu menn flokksins kallað eftir því að hann stigi til hliðar.
Skrifaði í árbók hennar
Moore sjálfur hefur þó sagt að ekkert sé til í þessum ásökunum og um sé að ræða „nornaveiðar“ og árásir pólitískra andstæðinga sinna.
Nelson segir að hún hafi engum sagt frá þessu í fyrstu og hún hafi óttast Moore. Hún hafi falið marbletti sína með farða og hætt í vinnunni daginn eftir. Hún hafi aldrei farið aftur á veitingastaðinn. Þá segir hún að þetta komi stjórnmálum ekkert við, hún og eiginmaður hennar hafi kosið Donald Trump til forseta.
Hún segir einnig að hún hafi aldrei vitað af öðrum fórnarlömbum Moore og líklega hefði hún tekið þetta leyndarmál með sér í gröfina ef hinar konurnar fjórar hefðu ekki stigið fram.
Máli sínu til stuðnings sýndi Nelson blaðamönnum texta sem Moore á að hafa skrifað í árbók hennar frá skólanum.
„Ég gæti ekki sagt gleðileg jól við sætari og fallegri stelpu. Jólin 1977. Roy Moore, saksóknari.“
Ms. Nelson's printed statement includes a picture of Moore's note in her yearbook...
"Love, Roy Moore D.A." pic.twitter.com/cXfLThHkb0
— Michael Del Moro (@MikeDelMoro) November 13, 2017
Moore sagði Allred leiða „nornaveiðarnar“ gegn sér og að hann væri saklaus. Hann hefði aldrei brotið kynferðislega gegn nokkri manneskju. Þar að auki sagði í tilkynningunni að hann myndi leita réttar síns gegn þeim sem hafi borið hann sökum.
Á blaðamannafundinum viðurkenndi Allred að vera skráð í Demókrataflokkinn. Það kæmi málinu hins vegar ekkert við. Hún segir Nelson hafa haft samband við sig en ekki öfugt.
Fjöldi þingamannan Repúblikanaflokksins hafa kallað eftir því að Moore stigi til hliðlar og jafnvel hefur verið stungið upp á því að ef hann vinni kosningarnar og fái sæti á öldudeild Bandaríkjaþings kjósi aðrir þingmenn um að reka hann frá þinginu.