Skaut nágrannakonuna til bana í stað dádýrs Kjartan Kjartansson skrifar 24. nóvember 2017 23:41 Nágranninn skaut konuna með skammbyssu sem má nota við veiðar á dádýrum. Vísir/AFP
Ekki liggur fyrir hvort að bandarískur maður sem skaut nágrannakonu sína til bana í bakgarðinum þeirra verðir ákærður fyrir glæp. Maðurinn segist hafa talið að hann væri að skjóta á dádýr. Atvikið átti sér stað bænum Sherman í New York-ríki í Bandaríkjunum á miðvikudag, daginn fyrir þakkargjörðarhátíðina. Rosemary Billquist hafði farið út að viðra hundana sína tvo en þegar hundarnir komu einir geltandi til baka grunaði Jamie, eiginmann hennar, að ekki væri allt með felldu, að því er kemur fram í frétt Washington Post. Skömmu síðar komu sjúkrabílar á staðinn og kom þá í ljós að Rosemary hefði orðið fyrir byssuskoti. Hún var úrskurðuð látin við komuna á sjúkrahús. Nágranni þeirra, Thomas Jadlowski, skaut Billquist. Hann segist hafa talið sig hafa séð dádýr á enginu fyrir aftan hús þeirra. Það hafi verið í um 180 metra fjarlægð. Þegar hann heyrði öskur gerði hann sér grein fyrir að hann hefði skotið manneskju. Hljóp hann að konunni og hélt þrýstingi að sári hennar þar til sjúkraliðar komu á staðinn. Jadlowski hefur ekki verið ákærður og er sagður hafa verið samvinnuþýður við lögreglu. Saksóknari í Chautauqua-sýslu mun fara yfir mál hans og ákveða hvort hann verði ákærður fyrir saknæmt athæfi. Atvikið átti sér stað innan við klukkustund eftir sólsetur en þá er ólöglegt að veiða. Eins og gefur að skilja á Jamie Billquist erfitt með að sætta sig við skyndilegt fráfall eiginkonu sinnar og efast um frásögn Jadlowski. „Hann á að hafa verið í 180 metra fjarlægð. Hann hélt að þetta væri dádýr sem mér finnst erfitt að trúa. Ef þú veist ekki hvað þetta er, hvers vegna að skjóta?“ segir hann.
Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira