Fengu einn á snúðinn yfir morgunmatnum Stefán Ó. Jónsson skrifar 29. desember 2017 06:41 Það var handagangur í öskjunni aðfaranótt þriðjudagsins. SKjáskot
Lögreglan í Ohio-ríki í Bandaríkjunum leitar nú logandi ljósi að fólki sem kann að hafa upplýsingar um heljarinnar slagsmál sem brutust út á morgunverðarstað í borginni Lima aðfaranótt þriðjudagsins. Myndbandsupptaka úr farsíma, sem sjá má hér að neðan, sýnir fjölda karla og kvenna slást af öllum lífs- og sálarkröftum. Lögreglan veit þó lítið um hvaða fólk sést í myndbandinu eða af hverju slagsmálinu brutust út. Hamaganginum var lokið þegar fyrstu lögreglumenn mættu á vettvang en kona sem slasaðist hefur gefið sig fram við lögreglu. Að sögn héraðsmiðilisins NBC4I brutust jafnframt út önnur slagsmál á bílastæði morgunverðarstaðarins - fyrir framan lögreglumennina sem mættir voru til að skerast í leikinn. Höfðu þeir hendur í hári tveggja sem ákærðir hafa verið fyrir aðkomu sína að bílastæðaslagsmálunum. Sem fyrr segir er þó enn reynt að hafa hendur í hári þeirra sem börðust inni á staðnum - en myndband af þeim handalögmálum má sjá hér að neðan.
Mest lesið Ekkert heyrt frá fjölskyldunni frá því að hún flaug til Íslands í síðustu viku Innlent Uppgefinn einyrki við Hverfisgötu kveður Innlent Vill breyta lögum um .is Innlent Annar árekstur á sama vegkafla og einn fluttur með sjúkrabíl Innlent Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Erlent Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Erlent Fjölskyldan í haldi vegna gruns um innflutning fíkniefna Innlent Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Erlent Enn eitt innbrotið í miðbænum Innlent Breytir ekki veðurspám til að þóknast hátíðahöldurum Innlent Fleiri fréttir „Hún féll saman eins og regnhlíf“ Drengir í haldi grunaðir um undirbúning hryðjuverkaárásar í skóla Von der Leyen kallar eftir átaki um öruggari landamæri Lýsa yfir neyðarástandi í Washington vegna gróðurelda Niðurgangspestin hefur dregið tvo til dauða Þrjú börn látin eftir drónaárás á baðströnd Á þriðja tug enn saknað eftir að kviknaði í ferju Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Sjá meira