Úthluta metfjölda sérleyfa en hætta við Drekasvæðið Kristján Már Unnarsson skrifar 23. janúar 2018 22:15
Ákvörðun norskra stjórnvalda um að draga ríkisolíufélagið Petoro út úr olíuleit á Drekasvæðinu var tekin daginn eftir að inn í ríkisstjórnina kom nýr flokkur, sem eindregið hefur barist gegn því að Jan Mayen-svæðið yrði opnað til olíuleitar. Samtímis úthlutaði norska ríkisstjórnin metfjölda nýrra sérleyfa til olíuleitar í eigin lögsögu. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2. Ríkisolíufélögin CNOOC og Petoro hafa sagt sig frá olíuleit á Drekasvæðinu, aðeins tveimur mánuðum eftir að þau samþykktu að taka leitina yfir á næsta stig með því að fara í grunnar boranir. Ráðamenn íslenska félagsins Eykons eru steinhissa. Stjórnarformaðurinn Heiðar Guðjónsson segir málið lykta af pólitík og efast um að viðskiptalegar forsendur liggi að baki. Þættir eins og hækkandi olíuverð og ákvörðun Statoil um að hefja vinnslu á sambærilegu svæði í Barentshafi, Johan Castberg-svæðinu, ættu fremur að hvetja til frekari leitar. Statoil áætlar að svæðið beri sig við 35 dollara olíuverð. Getum er að því leitt að mikið tap CNOOC á fjárfestingum í olíu- og gasiðnaði Kanada hafi fælt kínverska félagið frá frekari fjárfestingum í þessum heimshluta. CNOOC var framkvæmdaaðili Drekaleyfisins og þegar fyrir lá ákvörðun þess um að draga sig út virðist hafa verið rökrétt að Petoro færi einnig út, enda er það stefna norska félagsins að vera aðeins rétthafi sérleyfa en ekki framkvæmdaaðili. Ríkisstjórnarskipti í Noregi síðastliðinn miðvikudag hjálpuðu heldur ekki til en þá bættist þriðji flokkurinn inn í minnihlutastjórn Ernu Solberg, Venstre-flokkur hinnar umtöluðu Trine Skei Grande. Venstre hefur reynt að byggja upp ímynd sem umhverfisvænn flokkur, og lýsti því yfir fyrir átta árum að olíuvinnsla á Jan Mayen-svæðinu væri hneyksli. Flokkurinn lagðist gegn því í Stórþinginu í desember að Petoro fengi fjárheimild til meiri olíuleitar á Drekasvæðinu og í stjórnarmyndunarviðræðunum nú í janúar hrósaði Venstre sér svo af því að hafa fengið því framgengt að bæði Lófóten-svæðið og Jan Mayen-svæðið yrðu friðuð gagnvart olíuleit á kjörtímabilinu. Það hefði því litið afar illa út fyrir flokkinn, þegar málið var lagt fyrir fund norsku ríkisstjórnarinnar síðastliðinn fimmtudag, ef ákvörðun hefði verið tekin um annað en að draga Petoro út úr samstarfinu við Íslendinga á Jan Mayen-svæðinu. Sérstaklega í ljósi þess að á sama tíma úthlutaði norska ríkisstjórnin 75 nýjum sérleyfum til olíuleitar; 8 í Barentshafi, 22 í Noregshafi og 45 í Norðursjó. Þetta er mesti fjöldi nýrra sérleyfa í hálfrar aldar olíusögu Noregs.
Olíuleit á Drekasvæði Tengdar fréttir Kvennastjórn í skugga krassandi kynlífssögu Ný hægrigræn ríkisstjórn tók við völdum í Noregi í dag. Sögusagnir um kynlífshneyksli nýs menntamálaráðherra skyggja hins vegar á stjórnarskiptin. 17. janúar 2018 21:00 Fjórfalda fjárheimildir til olíuleitar á Drekasvæði Olíuleit á íslenska Drekasvæðinu fjórfaldast að umfangi á næsta ári, miðað við fjárheimildir sem norska Stórþingið samþykkti fyrir helgi til ríkisolíufélagsins Petoro. 18. desember 2017 21:15 Neitar að hætta olíuleitinni og segir málið lykta af pólitík Olíuleit á Drekasvæðinu gæti verið lokið eftir að kínverska ríkisolíufélagið CNOOC og norska ríkisolíufélagið Petoro ákváðu að skila inn sérleyfi sínu. Íslenska félagið Eykon vill halda áfram þótt Orkustofnun telji forsendur brostnar. 22. janúar 2018 18:39 Sér ekki loftslagsmarkmið og olíuvinnslu ganga saman Umhverfisráðherra telur það afar ólíklegt að ráðist verði í nýtt útboð vegna olíuleitar í tíð sitjandi ríkisstjórnar. 23. janúar 2018 16:00 Statoil byggir upp nýtt olíusvæði í Barentshafi Norska ríkisolíufélagið Statoil hefur tilkynnt um 600 milljarða króna uppbyggingu á nýju olíuvinnslusvæði í Barentshafi, þess nyrsta í olíusögu Noregs. 12. desember 2017 22:15 Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Fleiri fréttir Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Sjá meira
Kvennastjórn í skugga krassandi kynlífssögu Ný hægrigræn ríkisstjórn tók við völdum í Noregi í dag. Sögusagnir um kynlífshneyksli nýs menntamálaráðherra skyggja hins vegar á stjórnarskiptin. 17. janúar 2018 21:00
Fjórfalda fjárheimildir til olíuleitar á Drekasvæði Olíuleit á íslenska Drekasvæðinu fjórfaldast að umfangi á næsta ári, miðað við fjárheimildir sem norska Stórþingið samþykkti fyrir helgi til ríkisolíufélagsins Petoro. 18. desember 2017 21:15
Neitar að hætta olíuleitinni og segir málið lykta af pólitík Olíuleit á Drekasvæðinu gæti verið lokið eftir að kínverska ríkisolíufélagið CNOOC og norska ríkisolíufélagið Petoro ákváðu að skila inn sérleyfi sínu. Íslenska félagið Eykon vill halda áfram þótt Orkustofnun telji forsendur brostnar. 22. janúar 2018 18:39
Sér ekki loftslagsmarkmið og olíuvinnslu ganga saman Umhverfisráðherra telur það afar ólíklegt að ráðist verði í nýtt útboð vegna olíuleitar í tíð sitjandi ríkisstjórnar. 23. janúar 2018 16:00
Statoil byggir upp nýtt olíusvæði í Barentshafi Norska ríkisolíufélagið Statoil hefur tilkynnt um 600 milljarða króna uppbyggingu á nýju olíuvinnslusvæði í Barentshafi, þess nyrsta í olíusögu Noregs. 12. desember 2017 22:15