Hélt fram sakleysi sínu en myndband leiddi annað í ljós Kristín Ólafsdóttir skrifar 12. október 2018 23:23 Í myndbandinu sést Zeigler greinilega miða byssu sinni á Walker. Mynd/Skjáskot
Bandarískur karlmaður á sextugsaldri hefur verið sakfelldur fyrir líkamsárás í Michigan-ríki í Bandaríkjunum eftir að hann reyndi að skjóta pilt sem spurði hann til vegar. Maðurinn er hvítur en drengurinn er svartur og hefur árásin verið sögð grundvallast á kynþáttafordómum. Hinn fjórtán ára Brennan Walker missti af skólabílnum að morgni tólfta apríl síðastliðinn og villtist á leið sinni í skólann. Hann bankaði upp á að heimili Jeffrey Zeigler til að spyrja til vegar en mætti þar Zeigler, vopnuðum haglabyssu. Í upptöku úr öryggismyndavél við húsið sést hvernig Walker bíður í rólegheitum eftir því að einhver komi til dyra. Hann tekur skyndilega á rás í burtu frá húsinu og Zeigler fylgir í humátt á eftir honum, miðar byssunni á hann og skýtur. Myndbandið má sjá í spilaranum hér að neðan.Zeigler var sakfelldur fyrir líkamsárás og tilraun til að valda alvarlegu líkamstjóni, en hafði þó verið ákærður fyrir tilraun til manndráps. Kviðdómur komst að þeirri niðurstöðu að skort hefði ásetning til þess. Zeigler gæti átt yfir höfði sér tíu ára fangelsi.Jeffrey Zeigler.Mynd/Lögregla í OaklandBæði Zeigler og eiginkona hans hafa verið sökuð um kynþáttafordóma í kjölfar árásarinnar. Í neyðarlínusímtali, sem eiginkonan hringdi í kjölfar árásarinnar, tilkynnir hún að „svartur karlmaður“ hafi reynt að brjótast inn í hús hennar. Þá hefur Zeigler sjálfur haldið fram sakleysi sínu í málinu. Hann fullyrti við vitnaleiðslur fyrr á árinu að hann hefði talið að pilturinn væri innbrotsþjófur og að hann hefði staðið hann að verki. Zeigler þvertók jafnframt fyrir að hafa miðað á Walker og hélt því fram að hann hefði hrasað og hleypt óvart af byssunni. Myndband úr öryggismyndavél Zeiglers leiddi þó annað í ljós. Ofbeldi gegn svörtum Bandaríkjamönnum hefur verið töluvert til umræðu síðustu ár. Einkum hefur spjótunum verið beint gegn ofbeldi af hálfu lögreglu en ítrekað hafa komið upp mál í Bandaríkjunum þar sem hvítir lögregluþjónar skjóta svart fólk til bana.
Bandaríkin Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Mismunuðu kvenkyns sérfræðilækni Landspítalans Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira