Telja sig hafa fundið lík bresks ferðamanns í Gvatemala Kristín Ólafsdóttir skrifar 12. mars 2019 08:58 Catherine Shaw. Mynd/Lucie Blackman-sjóðurinn
Lík, sem talið er vera af hinni bresku Catherine Shaw, fannst í Gvatemala í gær. Blásið var til umfangsmikillar leitar að Shaw, sem er 23 ára, fyrr í mánuðinum en ekkert hafði spurst til hennar síðan hún gekk út af hóteli sínu við Atitlan-vatn þann 5. mars síðastliðinn. Lögregla í Gvatemala tilkynnti í gær að leitarflokkar hefðu fundið lík við San Juan La Laguna í suðurhluta landsins. Samkvæmt frétt BBC hafa ekki verið borin formleg kennsl á líkið en fjölskylda Shaw hefur verið látin vita af fundinum. Líkið fannst eftir að leitarmenn gengu fram á jakka í eigu Shaw en áður hafði hvolpur, sem hún tók með sér af hótelinu, fundist í grenndinni. Í yfirlýsingu frá Lucie Blackman-sjóðnum, breskum samtökum sem halda skrá yfir týnda ferðamenn erlendis, segir að líkið sé talið vera af Shaw. Samtökin höfðu aðstoðað foreldra Shaw í Bretlandi við leitina að henni úti í Gvatemala. Shaw hóf ferðalag sitt í september árið 2018. Hún hafði dvalið með vini sínum í Gvatemala í tvær vikur en hafði áður ferðast um Mexíkó og Kaliforníu.
Bretland Gvatemala Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Sjá meira