Fjármagnaði tilboð í 40 prósenta hlut Hörður Ægisson og Kristinn Ingi Jónsson skrifar 30. maí 2019 06:00 Kauphöllin hafnaði í apríl beiðni Heimavalla um að taka hlutabréf félagsins úr viðskiptum. Vísaði hún meðal annars til þess að hluthafar að baki 19% atkvæða á aðalfundi hefðu kosið gegn afskráningu. Fréttablaðið/Stefán
Fjárfestahópurinn sem stóð að tilboði sem miðaði að afskráningu Heimavalla úr Kauphöll Íslands hafði fjármagnað að fullu tilboð í liðlega 40 prósenta hlut í íbúðaleigufélaginu og aflað skriflegra staðfestinga frá hluthöfum sem ráða yfir samanlagt 60 prósentum hlutafjár um að þeir hygðust ekki taka tilboðinu. Engu að síður voru forsvarsmenn Kauphallarinnar ekki reiðubúnir til þess að hvika frá þeirri afstöðu sinni að um 90 prósent hluthafa þyrftu að samþykkja afskráninguna á nýjum hluthafafundi. Þetta herma heimildir Fréttablaðsins. Mikillar óánægju gætir á meðal fjárfestahópsins og þeirra hluthafa Heimavalla sem studdu tilboðið með afstöðu Kauphallarinnar, samkvæmt heimildum blaðsins, en ákvörðun Kauphallarinnar um að hafna afskráningunni kom þeim verulega á óvart. Hópurinn, sem naut ráðgjafar Arctica Finance, taldi ekki forsendur til þess að halda áfram með málið í ljósi eindreginnar afstöðu Kauphallarinnar og ákvað því að falla frá tilboðinu. Hefur hópurinn jafnframt átt í samskiptum við Fjármálaeftirlitið um málið, eftir því sem Fréttablaðið kemst næst, en stofnunin hefur lögum samkvæmt eftirlit með starfsemi kauphalla. Kauphöllin taldi að afskráning Heimavalla, en félagið var skráð á hlutabréfamarkað í maí í fyrra, hefði verið til þess fallin að valda hluthöfum í leigufélaginu verulegu tjóni og hafa jafnframt neikvæð áhrif á trúverðugleika markaðarins. Hluthafar að baki 18,7 prósentum atkvæða á aðalfundi, sem væri verulega hátt hlutfall, hefðu enn fremur kosið gegn afskráningunni. Haft var eftir Páli Harðarsyni, forstjóra Kauphallarinnar, í Viðskiptablaðinu í síðasta mánuði að það væri mat Kauphallarinnar að boða þyrfti til nýs hluthafafundar til þess að taka afstöðu til afskráningarinnar og í því sambandi horfði Kauphöllin til þess að tillagan þyrfti að njóta fylgis um 90 prósenta hluthafa. Þó væri hvert og eitt tilfelli mismunandi. Sem kunnugt er gerði félag í stýringu Alfa Framtaks tilboð í mars síðastliðnum í allt að 27 prósenta hlut í Heimavöllum fyrir um fjóra milljarða króna í því skyni að greiða fyrir afskráningu íbúðaleigufélagsins en áður höfðu þrír af stærstu hluthöfum félagsins, Snæból, Gani og Klasi, lagt til að það yrði afskráð. Fyrstnefnda félagið er í eigu hjónanna Finns Reyrs Stefánssonar og Steinunnar Jónsdóttur og þá er Gani í eigu Tómasar Kristjánssonar en saman leiða þau fjárfestingafélagið Klasa. Sjóðurinn Umbreyting, í stýringu Alfa Framtaks, og fjárfestingafélögin Sigla, Varða Capital og Eignarhaldsfélagið VGJ lýstu sig reiðubúin til þess að fjármagna tilboðið.Viðræður út um þúfur Í kjölfar ákvörðunar Kauphallarinnar um að hafna afskráningu Heimavalla gekk áðurnefndur fjárfestahópur frá fjármögnun til þess að kaupa út hluthafa sem ráða yfir 40 prósentum hlutafjár í félaginu, eftir því sem heimildir Fréttablaðsins herma, og auk þess aflaði hann staðfestinga frá öðrum hluthöfum – sem eiga um 60 prósenta hlut í félaginu – um að þeir hygðust ekki taka tilboði hópsins. Áður hafði fjárfestahópurinn sett það skilyrði, eins og áður sagði, að tilboðið væri samþykkt af að hámarki 27 prósentum hluthafa Heimavalla en til viðbótar var tilboðið háð þeim fyrirvara að hlutabréf félagsins yrðu tekin úr viðskiptum í Kauphöllinni. Samkvæmt samtölum Fréttablaðsins við þá hluthafa sem stóðu að tilboðinu hvikuðu forsvarsmenn Kauphallarinnar hins vegar ekki frá afstöðu sinni og skiluðu viðræður um lausn málsins ekki niðurstöðu sem hluthafarnir gátu sætt sig við. Hluthafarnir og ráðgjafar þeirra gagnrýna afstöðu Kauphallarinnar harðlega og telja hana meðal annars til þess fallna að valda hluthöfum í félaginu fjárhagstjóni, enda ræni hún þá möguleikanum á því að selja bréf sín á hæsta verði – 1,3 krónum á hlut – sem greitt hefur verið fyrir þau frá skráningu. Ákvörðun um afskráninguna hafi enn fremur verið samþykkt á hluthafafundi með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða og verið studd valfrjálsu tilboði til þeirra hluthafa sem hafi ekki hugnast afskráning. Þá hafi 89 prósent hluthafa annaðhvort stutt eða ekki gert athugasemd við áformin. Er einnig bent á að með ákvörðun sinni hafi Kauphöllin hækkað þann þröskuld sem sé fyrir afskráningu félaga sem geti valdið því að félögum hugnist síður að skrá verðbréf sín í kauphöll. Þannig geti ákvörðun Kauphallarinnar að lokum dregið úr trúverðugleika markaðarins.
Birtist í Fréttablaðinu Húsnæðismál Markaðir Mest lesið Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Viðskipti innlent Gervigreindin: Reksturinn á svaka flugi og fjörið þó rétt að byrja Atvinnulíf Danskir seðlar teknir úr umferð og verða ógildir Neytendur Spá aukinni verðbólgu Viðskipti innlent Kauphallir rétta úr kútnum Viðskipti erlent Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Viðskipti innlent Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Viðskipti innlent Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Viðskipti innlent Penninn leggst í miklar breytingar Viðskipti innlent Evrópusambandið frestar tollahækkunum Viðskipti erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Vorfundur RARIK - Hreyfum samfélagið til framtíðar Milljarðaafgangur og besta niðurstaðan í sautján ár Enginn sjái eftir því á dánarbeðinum að hafa ekki unnið meira Mögulega leikflétta og eða viðbrögð við lækkunum Miðlunarlónin standa öll mun betur en á horfðist Bein útsending: Hlýtur Carbfix Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna? Penninn leggst í miklar breytingar Ríflega tveggja milljarða afgangur á Akureyri Kauphöllin réttir við sér Spá aukinni verðbólgu Andstæðingar Carbfix í Hafnarfirði reyna að hafa áhrif á Húsvíkinga Tollahækkanirnar geti þjappað Evrópu og Kína betur saman Börn fá gefins Barnabónus með helstu nauðsynjun Árni Oddur tekur við formennsku Starfsmenn ríkisins þiggja boð ríkisins Bein útsending: SFF dagurinn - Breyttur heimur ÍL-sjóður: LV gengur að tilboði ríkisins Ísland brotlegt í pitsaostamálinu Hitastigið í hagkerfinu hærra en áður var talið Enn ein eldrauð opnun Fjögur ráðin í nýtt gagna- og gervigreindarteymi Varist Jóhanna Vigdís til liðs við Keystrike Röntgenveldið tekur yfir rekstur Bullseye Arctic Adventures kaupir Happy Campers Lækkanir halda áfram Leigja út fjórar vélar og taka eina á leigu Hækkanir í Kauphöllinni á ný Nýr fríverslunarsamningur við Úkraínu samþykktur Greiðslur og rafræn skilríki komin í samt lag Ráðinn forstöðumaður fyrirtækjasviðs Ormsson Sjá meira