Morðinginn í Darwin notaði ólöglega haglabyssu Kjartan Kjartansson skrifar 5. júní 2019 10:54 Lögreglumaður gæti vettvangs þar sem byssumaðurinn var handsamaður í gær. Vísir/EPA
Ástralska lögreglan segir að karlmaður sem er talinn hafa myrt fjóra og sært nokkra til viðbótar í borginni Darwin í gær hafi notað ólöglega haglapumpu við árásina. Grunur leikur á að maðurinn hafi leitað að ákveðnum einstaklingi. Maðurinn hefur ekki verið nafngreindur af yfirvöldum þó að fjölmiðlar hafi nefnt hann. Hann er sagður 45 ára gamall og kunnur lögreglunni. Eftir skothríðina flúði hann vettvang en lögreglumenn höfðu hendur í hári hans um klukkustund síðar.Breska ríkisútvarpið BBC hefur eftir lögreglunni að maðurinn hafi verið laus úr fangelsi til reynslu og hafi verið með rafrænt eftirlitsmerki á sér þegar hann framdi ódæðið. Hann hafi verið búinn að afplána fjögur ár af sex ára fangelsisdómi. Árásarmaðurinn kom við á nokkrum stöðum í Darwin og skaut á fólk, þar á meðal vegahóteli þar sem hann skaut einn til bana. Hann er sagður hafa skotið á fólk í nokkrum herbergjum þar áður en hann flúði á bíl. Vitni segja að hann hafi leitað að nafngreindum manni og lögreglan hefur staðfest það. Skotvopnið sem maðurinn notaði var ólöglega haglapumpa með hlaupvíddina tólf. Yfirmaður lögreglunnar í Norðursvæði Ástralíu segir að byssunni gæti hafa verið stolið fyrir allt að 22 árum. Byssan er ein þeirra sem hefði átt að afhenda yfirvöldum eða eyða þegar ríkisstjórn Ástralíu hóf herferð til að fækka skotvopnum eftir verstu skotárás í sögu landsins árið 1996. Þá voru 35 manns skotnir til bana í Port Arthur í Tasmaníu.
Ástralía Tengdar fréttir Fjórir skotnir til bana á vegahóteli í Ástralíu Árásarmaðurinn er sagður hafa skotið á fólk í nokkrum herbergjum áður en hann flúði. Hann var handtekinn skömmu síðar. 4. júní 2019 13:09 Mest lesið Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Noregur sökkar“ Erlent Hefja leit að Lúðvík í fyrramálið Innlent Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku Innlent Deila um sóttkví fer alla leið Innlent Fleiri fréttir Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Sjá meira
Fjórir skotnir til bana á vegahóteli í Ástralíu Árásarmaðurinn er sagður hafa skotið á fólk í nokkrum herbergjum áður en hann flúði. Hann var handtekinn skömmu síðar. 4. júní 2019 13:09