„Valdníðsla gagnvart íbúum Flóahrepps“ Magnús Hlynur Hreiðarsson skrifar 4. júní 2019 20:30 Árni Eiríksson, oddviti Flóahrepps. Magnús Hlynur Hreiðarsson.
Á fundi sveitarstjórnar Flóahrepps í dag var meðal annars tekið fyrir erindi frá Heilbrigðiseftirliti Suðurlands um átaksverkefnið „Hreint Suðurland“, sem öll sveitarfélög á svæðinu taka þátt í. Af því tilefni lagði Árni Eiríksson, oddviti fram eftirfarandi bókun. „Ágæta samstarfsfólk í sveitarstjórn: Ég hef verið mjög hugsi undanfarna daga varðandi hreinsunarátak sem Heilbrigðiseftirlit Suðurlands er lagt af stað í og var m.a. fréttaefni í Morgunblaðinu þann 22. maí 2019. Eitt er að koma í veg fyrir að hlutir séu heilsuspillandi, mengandi eða hættulegir og þykir mér sjálfsagt að brugðist sé við slíku og eigendur/íbúar hvattir til að gera úrbætur og hef ég trú á að þeir bregðist við því fái þeir ábendingar þar um. Rétt að nefna líka að aldrei hefur verið jafn góð þátttaka í vorhreinsun og nú í vor enda umhverfisvitund almennings mjög að aukast síðustu ár og er það vel. Hitt er annað mál þegar utanaðkomandi aðilar (embættismenn eða nágrannar) ætla að taka sér það vald að ákveða fyrir hönd eigenda lands, lóða, mannvirkja og lausamuna hvað sé þörf á að eiga og hverju skuli farga og telja sig betur bæra til þess en eigandann sjálfan bara af því eitthvað stingur þá í augun( til er ágætis ráð við því og er það að horfa í hina áttina). Heilbrigðiseftirlit Suðurlands sendi svo eigandanum bréf og tilkynni honum hverju hann skuli farga og heimsæki hann í framhaldinu bregðist hann ekki við. Geri eigandinn/ íbúinn ekkert tekur Heilbrigðiseftirlit Suðurlands sér það vald að senda hreinsunaraðila inn á einkaland til að sækja eigur eiganda/íbúa á hans kostnað og telur sig svo geta gengið að eigum hans með lögveði í lóð og fasteign, og getur krafist uppboðs á eigninni, greiði eigandinn ekki reikninginn. Með öðrum orðum sá sem hefur sér til ánægju verið að draga að sér eða kaupa t.d gamla bíla og vélar einhverskonar sem eru í hans augum verðmæti og hafa jafnvel umtalsvert söfnunargildi getur átt von á að missa ofan af sér húsnæðið geti hann ekki borgað verktaka sem sótti eigur hans gegn hans vilja og hendi þeim. Þið verðið að fyrirgefa en mér finnst þetta algalið og alrangt og get ekki sem kjörinn fulltrúi í sveitarstjórn staðið með svona vinnubrögðum og valdníðslu gagnvart íbúum Flóahrepps. Ég óska því eftir að sveitarstjórn Flóahrepps sendi Heilbrigðiseftirliti Suðurlands erindi þar sem við afþökkum samflot við önnur sveitarfélög á Suðurlandi hvað þetta hreinsunarátak varðar og höfnum alfarið að gengið verði að íbúum Flóahrepps með þessum hætti.“Árni, oddviti Flóahrepps, ásamt Hrafnkatli Guðnasyni, sveitarstjórnarmanni og Eydísi Indriðadóttir, sveitarstjóra Flóahrepps. Myndin var tekin á ársþingi Samtaka sunnlenskra sveitarfélaga.Magnús Hlynur Hreiðarsson.Furða sig á framkomu oddvitans Fulltrúar T-listans, sem skipa minni hluta sveitarstjórnar brugðust við með bókun. „Fulltrúar T-listans furða sig á framkomnu erindi oddvita Flóahrepps, Árna Eiríkssonar. Í erindinu leggur oddvitinn til að Flóahreppur kljúfi sig út úr samstarfsverkefninu „ Hreint Suðurland“, en samstaða hafði náðst meðal allra sveitarfélaga á Suðurlandi um að fara í hreinsunarátak undir handleiðslu Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Í erindi oddvita segir að Heilbrigðiseftirlit Suðurland, að undangengnum bréfaskriftum ,,taki sér það vald að senda hreinsunaraðila inn á einkaland til að sækja eigur eigenda/íbúa á hans kostnað og telur sig svo geta gengið að eigum hans ( eigenda/íbúa innskot undirritaðra) með lögveði í lóð og fasteign, og getur krafist uppboðs á eigninni, greiði eigandinn ekki reikninginn.“ Oddviti álítur að vinnubrögð Heilbrigðiseftirlitsins, eins og ritað er í erindinu sé ,,valdníðsla gagnvart íbúum Flóahrepps“. 851 Oddvita er bent á að kynna sér heimildir heilbrigðisnefnda sveitarfélaga vegna ákvörðunar um lóðahreinsun og / eða að láta fjarlægja lausamuni s.s. bílflök, brotajárn og fl. samanber 17 gr. reglugerðar nr. 737/2003 með síðari breytingum. Einnig er oddvita bent á ábyrgð eigenda húss, mannvirkis og/eða lóðar sjá reglugerð nr. 941/2002, 18 gr, 1. mgr., 20 gr. 1 mgr. og 21 gr. Við höfnum því alfarið erindinu.“ Málið var rætt ítarlega og í framhaldi af umræðunni var ákveðið að óska eftir fundi með starfsmanni átaksins og framkvæmdastjóra Heilbrigðiseftirlits Suðurlands. Var það samþykkt með fimm atkvæðum sveitarstjórnar.
Flóahreppur Sveitarstjórnarmál Mest lesið Vilja tæpar tvö hundruð billjónir til varnarmála Erlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi Innlent Þriðji þingmaðurinn segir af sér á viku Erlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Innlent Framlengir vopnahléið og herkvína Erlent Fleiri fréttir Við þurfum að vera tilbúin að takast á við eldgosavá Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Sjá meira