Handtekinn fyrir að pissa á flugvélargangi og áreita sofandi konu í sama flugi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. ágúst 2019 10:45 Thorbjorn Olesen vbrosti örugglega ekki þegar breska lögreglan tók á móti honum við útgöngudyrnar í flugvélinni. Getty/ Andrew Redington
Dauðadrukkinn danskur kylfingur gerðist sekur um saknæma hegðun á leið sinni frá Bandaríkjunum til Englands. Hann gæti verið á leið í fangelsi. Danski atvinnukylfingurinn Thorbjorn Olesen var handtekinn fyrr í þessari viku eftir skammarlega hegðun í flugi frá Tennessee í Bandaríkjunum til London í Englandi. Fox Sport segir meðal annars frá.Thorbjorn Olesen was ARRESTED after "sexually assaulting fellow passenger and urinating in the aisle" on his flight back home from the WGC FedEx St Jude Invitational Ian Poulter was on the flight with him REPORT https://t.co/T9BJCeqscepic.twitter.com/9TxTRSP0gG — GolfMagic.com (@GolfMagic) August 1, 2019 Bandarískir og enskir fjölmiðlar eru meðal þeirra sem segja frá háttalagi Thorbjorn Olesen í þessu flugi en hann er á 62. sæti yfir bestu kylfinga heims. Thorbjorn Olesen er eins og er næstefsti danski kylfingurinn á heimslistanum. Olesen var að ferðast með flugi British Airways frá Memphis til Heathrow flugvallar á mánudaginn og var blindfullur og blekaður í fluginu. Hann hafði verið að keppa á WGC-FedEx St. June Invitational golfmótinu á PGA-mótaröðinni. Hinn 29 ára gamli Olesen var handtekinn við komuna til London. Hann er meðal annars sakaður um að hafa pissað á flugvélaganginn og áreitt sofandi konu kynferðislega í fluginu.Thorbjorn Olesen arrested on suspicion of sexual assault. Also 'urinated in aisle way of BA flight' on way back from @WGCFedExhttps://t.co/zhf0LfwOsr — Sam Morgan (@sam__morgan) August 1, 2019 Ian Poulter, liðsfélagi Olesen í evrópska Ryderliðinu frá 2018, reyndi að róa Olesen niður í fluginu en eftir að Poulter fór að sofa þá hélt Olesen áfram. Poulter sagði Independent frá því að hann vissi ekki af hegðun félaga síns fyrr en að lögreglan mætti þeim í flugvéladyrunum og handtók hann. Scotland Yard staðfesti handtöku manns í þessu flugi og að hann hafi verið handtekinn vegna gruns um kynferðisbrot, ölvun um borð í flugvél og fyrir hlýða ekki fyrirmælum áhafnarmeðlima. British Airways hefur líka staðfest þessar fréttir og í yfirlýsingu frá flugfélaginu segir að svona hegðun verði aldrei liðin. Farþegar og áhöfn eiga að geta notið flugs án þess að eiga á hættu að verða fyrir svívirðingum eins og þarna áttu sér stað að hálfu Thorbjorns Olesen.Whoa. A witness said of (Thorbjorn) Olesen: “He started abusing some of the passengers and crew and then made a pass at one of the female passengers before taking a leak in the aisle.”https://t.co/RivmSaKrXM — No Laying Up (@NoLayingUp) August 1, 2019
Danmörk Golf Mest lesið Biður Dag afsökunar Handbolti „Fáránlegt ef við ætlum að fara breyta til“ Handbolti Gísli Þorgeir og Viktor Gísli á toppnum en Óðinn í öðru sæti Handbolti Vondar fréttir úr herbúðum Arsenal sem skoðar markaðinn Enski boltinn „Þá byrja þeir bara að spila þennan viðbjóð“ Handbolti Willum snýr aftur í hollenska boltann Fótbolti Dreymdi medalíu og fær óskiljanlega emoji kalla frá pabba sínum Handbolti Sesko tryggði þriðja sigurinn í röð Enski boltinn Manchester City glutraði niður tveggja marka forystu Enski boltinn Myndaveisla: Íslendingar klárir í lokabardagann á EM Handbolti Fleiri fréttir LIV-stjörnur þekkjast ekki boð PGA-manna Koepka snýr aftur og öðrum LIV-stjörnum býðst að fylgja honum Kylfingur tók áhættuna og upplifði versta golfdag lífsins McIlroy miður sín yfir ummælum áhorfenda um dóttur hans Efnilegur kylfingur meðal þeirra sem létust í brunanum í Sviss Sjá meira