Næstu keppnisleikir íslenska karlalandsliðsins í körfubolta verða í undankeppni HM í febrúar Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 23. ágúst 2019 14:00 Martin Hermannsson í leiknum á móti Sviss á miðvikudaginn. Mynd/FIBA.basketball
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta á ekki lengur möguleika á því að komast á Eurobasket mótið sem fer fram haustið 2021 en íslenska landsliðið þarf þó ekki að bíða fram að næstu undankeppni EM til að spila næstu keppnisleiki sína. Ísland mun næst taka þátt í forkeppni að undankeppni HM 2023 en sú keppni hefst í febrúar á næsta ári eða eftir hálft ár. Ísland mun þar keppa við aðrar þjóðir sem duttu út svipuðum tíma og Ísland. Þetta eru þjóðir eins og Hvíta-Rússland, Albanía, Slóvakía, Kýpur, Kósóvó, Lúxemborg og Portúgal sem eru allar í sömu stöðu og Ísland. Við þetta gæti síðan bæst við þjóðir sem vilja vera með, þjóðir eins og Austurríki, Noregur og Malta svo einhverjar séu nefndar. Það verður dregið í riðlana í forkeppni undankeppninnar í vetur, annaðhvort í október eða desember, en FIBA á eftir að ákveða það. Ísland tók síðast þátt í undankeppni HM frá nóvember 2017 fram í júlí 2018. Þar varð íslenska liðið að sætta sig við fjórða sætið í sínum riðli og komst því ekki áfram í aðra umferð undankeppninnar. Ísland byrjaði þá í fyrstu umferð undankeppni HM en þarf nú að byrja í forkeppninni. Riðill Íslands í forkeppni undankeppni HM 2023 verður spilaður í febrúar 2020, nóvember 2020 og í febrúar 2021. Vinni íslenska liðið sinn riðil þá tryggir það sér þátttökurétt í fyrstu umferð undankeppni HM 2023. Það er sami hluti og íslenska liðið byrjaði undankeppni HM 2019.
Körfubolti Mest lesið Sá besti í heimi opnar sig: Þetta er ekki fullnægjandi líf Golf Dæmdur fyrir að myrða tengdaföður sinn Sport Meistaramót Golfklúbbs Grindavíkur átti að byrja í dag: „Við hinkrum aðeins“ Golf Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Körfubolti Settur í bann fyrir að hjálpa fátækum krökkum Sport Norskur ólympíumedalíuhafi látinn eftir að eldingu laust í höfuð honum Sport Aron Pálmars fær kveðjuleik í Kaplakrika og Veszprém mætir Handbolti Steven Gerrard orðinn afi Enski boltinn Cecilía Rán fékk á sig fastasta skot EM til þessa Fótbolti Vilja hefja golfmótið á morgun: „Látum þetta ekki á okkur fá“ Golf Fleiri fréttir Íslensku strákarnir töpuðu stórt í sextán liða úrslitunum Stólarnir verða með í Evrópukeppninni í vetur „Getum ekki beðið eftir að sjá þig gera kraftaverk“ Yfirgefur Aþenu og semur við nýliðana Elvar Már til Póllands Erlendum leikmönnum Ármanns fækkar um einn Oladipo með augastað á endurkomu Enginn Kobe Bryant á topp tíu yfir þá bestu í sögunni Wembanyama fær grænt ljós frá læknateymi Spurs Raggi Nat á Nesið Sautján ára troðsludrottning vekur athygli Stólarnir semja við spænskan leikstjórnanda Sjö körfuboltamenn að fá íslenskan ríkisborgararétt Strákarnir unnu Slóvena á EM Fjögur lið sýnt LeBron áhuga Stjarna Cavs trúlofuð Grammy verðlaunahafa Doncic fékk að vita af sölunni en ekki LeBron Skellur í fyrsta leik hjá guttunum okkar Ísköld Clark stýrði sókninni eins og hershöfðingi Líkti Cooper Flagg við Kobe Bryant Áframhaldandi NBA tengingar í Bónus deildinni Taka einn efnilegasta leikmanninn frá Íslandsmeisturum Hauka Julio de Assis og Luka Gasic í Stjörnuna Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Sjá meira