Kína sniðgengur bandarískar vörur Oddur Freyr Þorsteinsson skrifar 9. nóvember 2019 08:30 Singles' Day er stærsti netverslunardagur ársins, stærri en útsöludagur Amazon, svartur föstudagur og "Cyber Monday“ samanlagðir.
Svo virðist sem mjög margir Kínverjar ætli sér að sniðganga bandarískar vörur á Singles' Day. Þeir segja að ástæðan sé þjóðerniskennd, en Bandaríkin og Kína hafa háð viðskiptastríð að undanförnu. Í nýlegri könnun sem var framkvæmd í Kína kom fram að næstum 78% af kínverskum neytendum ætli sér að sniðganga allar bandarískar vörur á Singles' Day, stærsta netverslunardegi ársins. Yfirstandandi deilur Bandaríkjanna og Kína um viðskiptatolla og tæknileg yfirráð á alþjóðamarkaði virðast vera skýringin. Könnunin var unnin af alþjóðlega ráðgjafarfyrirtækinu AlixPartners og fyrst var sagt frá henni í South China Morning Post. Af 2.000 svarendum sagði meira en helmingur að þjóðerniskennd væri ástæðan fyrir því að þeir kysu að kaupa ekki bandarískar vörur. Í samtali við South China Morning Post sagði yfirmaður AlixPartners, Jason Ong, að kínverskir neytendur kjósi yfirleitt vörur úr sínu nágrenni og að það hafi bara aukist með vaxandi þjóðerniskennd.Ótrúlega mikil netverslun á einum degi í Kína Singles’ day, eða 11-11, er sólarhringslöng verslunarhátíð á vefverslunum Alibaba; Taobao, Tmall og AliExpress og þetta er stærsti netverslunardagur ársins, stærri en útsöludagur Amazon, svartur föstudagur og „Cyber Monday“ samanlagðir. Árið 2018 seldust vörur fyrir 6,2 milljarða Bandaríkjadollara á svörtum föstudegi, á „Cyber Monday“ var salan 7,9 milljarðar dollara og á útsöludegi Amazon seldust vörur fyrir 4,2 milljarða dollara. Til samanburður var salan á Singles’ Day 30,8 milljarðar dollara. Könnunin gerir ráð fyrir því að þrátt fyrir áhrif viðskiptadeilunnar eigi kínverskir neytendur sem búa í stórborgum eftir að eyða 54% meira á Singles’ Day í ár en fyrir ári.Þjóðerniskennd mótar neysluhegðun Í skýrslu sem fylgdi könnuninni kemur fram að bandarísk merki geti búist við truflunum á sölu í Kína, en talið er að sniðgangan muni helst hafa áhrif á vörumerki eins og Nike, Tapestry Inc., Ralph Lauren, Capri Holdings og Tiffany & Co. Svarendur sögðu að þó að þjóðerniskennd væri að móta neysluhegðun þeirra myndu þeir samt ekki hika við að versla við evrópsk, japönsk og suður-kóresk merki. Kínverskir neytendur eru farnir að versla út frá þjóðernisáherslum í auknum mæli og kunna sífellt verr við allt sem þeir telja móðgun við menningu sína eða fullveldi. Á sama tíma eru fyrirtæki á Vesturlöndum að leita inn á kínverskan markað þar sem ekkert efnahagssvæði í heimi býður upp á jafn mikla möguleika á vexti. Þetta hefur valdið nokkrum núningi að undanförnu, til dæmis þegar einstaklingar sem eru viðriðnir vestræn stórfyrirtæki hafa lýst yfir stuðningi við mótmælin í Hong Kong. Það er ekki vel séð í Peking og hafa NBA-leikmenn sem og atvinnumenn í tölvuleikjum lent í vandræðum fyrir að tjá sig um mótmælin. Kínverskir neytendur hafa líka gagnrýnt fyrirtæki sem hafa brotið strangar reglur kínverskra stjórnvalda.
Birtist í Fréttablaðinu Kína Mest lesið Skuldar félagi Einars 44 milljónir og gæti misst 295 milljóna hús Viðskipti innlent Fegurð er glæpur kom út í mínus Viðskipti innlent „Alls konar fólk heyrt í mér um alls konar hluti“ Viðskipti innlent Þetta kostar skyndibiti á Íslandi Neytendur Atvinnumissir: „Ég kunni nú ekki við að spyrja Jón beint“ Atvinnulíf Segir engar breytingar hafa verið gerðar á uppskrift SS pylsna Neytendur Stórfyrirtæki hyggja á uppbyggingu á Hólmsheiði Viðskipti innlent Bæta við níunda áfangastað sínum á Spáni Viðskipti innlent Þrjár verslanir í Múlunum sektaðar eftir rassíu Neytendastofu Neytendur Nýtt trend: Engir yfirmenn á vinnustaðnum Atvinnulíf Fleiri fréttir Stýrivextir lækkaðir í Bandaríkjunum í fyrsta sinn í fjögur ár Tupperware lýsir yfir gjaldþroti Snúa við dómnum og dæma Bonnesen í fangelsi Gera Apple að greiða tvær billjónir í skatta Skaut samstundis niður tillögur um efnahagslega björgun Evrópu Bein útsending: Apple kynnir nýjustu græjurnar Hætta steðjar að lífsgæðum Evrópubúa Volvo heykist á algjörri rafvæðingu árið 2030 Þessari rafmagnsflugvél er ætlað að flytja 90 farþega Zuckerberg harmar að hafa látið undan þrýstingi Bidens Breska stjórnin samþykkir að efla London City-flugvöll Sádar sagðir byrjaðir að skrúfa fyrir kranann Susan Wojcicki er látin Ummæli Trump vekja áhyggjur af sjálfstæði seðlabanka Hlutabréfin ruku aftur upp degi eftir hrun Google beið lægri hlut í risavöxnu einokunarmáli Hrun í hlutabréfamörkuðum ytra Sjá meira