Skoðun

Veiði­vott­orð mikil­væg fyrir afla á er­lendan markað

Þorsteinn Hilmarsson skrifar

Það verður æ mikilvægara að geta gert grein fyrir uppruna þess afla sem ætlunin er að selja á mörkuðum erlendis. Síðastliðin 10 ár hefur þurft að framvísa veiðivottorði með sjávarafurðum sem fara á markað innan Evrópusambandsins og nú eru komin 3 ár síðan skylt varð að framvísa sambærilegum vottorðum við innflutning þorsks á Bandaríkjamarkað. Þá fjölgar sífellt þeim löndum sem tekið hafa upp notkun vottorða Evrópusambandsins við leyfisveitingu á innflutningi sjávarafurða.

Hér á Íslandi eru veiðivottorð gefin út af Fiskistofu og staðfesta þau að aflinn hafi verið löglega veiddur og skráður og komi úr veiðistofni sem lýtur marktækri fiskveiðistjórn sem stenst viðmið um sjálfbæra nýtingu. Fiskistofa gaf í fyrra út tæplega 37 þúsund slík vottorð. Ljóst er að án viðurkenndra veiðivottorða er hætt við að aðgangur að verðmætustu og mikilvægustu mörkuðum Íslendinga lokist á næstu árum. Einnig vinnur notkun þeirra gegn útflutningi á ólöglegum afla.

Fiskistofa reið á vaðið í samningum við ESB

Fiskistofa fyrir hönd Íslands var einn fyrsti aðili til að koma á fót veiðivottorðakerfi á grundvelli tvíhliðasamnings við ESB. Sett var upp rafrænt kerfi þar sem seljendur skrá upplýsingar um útflutning afurða og tilgreina úr hvaða löndunum aflinn kemur. Fram fer sjálfvirk athugun í kerfinu á hvort upplýsingarnar stemmi við gagnagrunna Fiskistofu. Þegar svo reynist verður vottorðið til í tölvu útflytjandans sem sendir það með öðrum útflutningsskjölum vörunnar.

Fiskistofa hefur það megin hlutverk að gæta að hagsmunum þjóðarinnar við ábyrga nýtingu hafs og vatna. Því teljum við mikilvægt að sofna ekki á verðinum heldur sýna fyrirhyggju í þessu mikla hagsmunamáli með því að þróa áfram það ágæta vottorðakerfi sem nýst hefur útflytjendum vel undanfarinn áratug og um leið tryggja ábyrgar veiðar og nýtingu. Nú rekur Fiskistofa allan afla rafrænt frá löndun og útgerð til fiskvinnslu (með viðkomu á fiskmarkaði þegar því er að skipta). Skráð er hvernig aflinn er unninn sem og hvert hann er fluttur út.

Öll aflaskráning rafræn

Með tilkomu smáforrits (apps) í snjallsíma eiga allar afladagbækur íslenska flotans að verða orðnar rafrænar í haust. Þar með verður mögulegt að rekja aflann ekki aðeins frá löndun til útflutnings afurða, heldur frá veiðiferð fiskiskipsins. Fiskistofa hefur hafið vinnu við að undirbúa nýtt veiðivottorðakerfi sem gera á útflytjendum og markaðsfyrirtækjum þeirra mögulegt að nýta rekjanleikann við markaðssetningu. Kerfið verður einnig þannig úr garði gert að það geti tengst nýju vottorðakerfi ESB og öðrum þegar innflutningsríkin bjóða upp á það.

Höfundur er sviðsstjóri Fiskistofu.




Skoðun

Sjá meira


×