Erlent

Bíl ekið inn í verslun í S­yd­n­ey

Hallgerður Kolbrún E. Jónsdóttir skrifar
Flestir hinna slösuðu eru konur á aldirnum 18 til 30 ára.
Flestir hinna slösuðu eru konur á aldirnum 18 til 30 ára. Getty/Tim Graham

Bíl var ekið inn í verslun sem selur hefðbundnar slæður í Sydney í Ástralíu í dag og slösuðust ellefu manns auk ökumannsins í atvikinu. Talskona lögregluembættisins í Nýju Suður Wales segir að ekkert bendi til að atvikið hafi verið hryðjuverk.

Ökumaður bílsins ók fyrst á ökutæki sem var kyrrstætt á rauðu ljósi áður en hann ók inn í búðina. Atvikið gerðist klukkan 15:15 á staðartíma en miðað við myndbönd sem birst hafa á samfélagsmiðlum virðist ökumaður bílsins gera sig tilbúinn til að aka á fullri ferð inn í verslunina.

Maðurinn sem ók bílnum slasaðist við atvikið auk ellefu viðskiptavina verslunarinnar sem flestir eru konur á aldrinum 18 til 30 ára. Þær voru allar inni í versluninni þegar bílnum var ekið inn í hana. Fram kemur í frétt Guardian að viðbragðsaðilar telji áverka hinna slösuðu ekki lífshættulega.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×