Innlent

Útlit fyrir að meira milt loft komist til landsins

Kristján Már Unnarsson skrifar
Álftarpar á Árbæjarlóni í morgun í suðvestan éljagangi með Breiðholtshvarf í baksýn. Nú styttist í að þessi stærsti fugl Íslands fari að huga að hreiðurgerð og varpi.
Álftarpar á Árbæjarlóni í morgun í suðvestan éljagangi með Breiðholtshvarf í baksýn. Nú styttist í að þessi stærsti fugl Íslands fari að huga að hreiðurgerð og varpi. Mynd/KMU

Loksins sjást merki þess í langtímaspám að Vetur konungur búi sig undir að slaka á klóm sínum og gefa eftir gagnvart mildari vindum vorkomunnar, nú þegar innan við mánuður er í sumardaginn fyrsta, sem í ár er 23. apríl.

„Útlit er fyrir að enn meira milt loft komist til okkar um og eftir helgi og gæti jafnvel staðið í nokkra daga og ætti þá að taka enn meira af snjónum sem fyrir er,“ segir í hugleiðingu veðurfræðings á Veðurstofu Íslands, sem varar jafnframt við snjóaleysingum:

„Þar sem mikil snjóþyngsli eru um norðanvert landið og á Vestfjörðum er gott að hafa í huga að leysingavatn finnur alltaf stystu leið og því mikilvægt að hreinsa frá niðurföllum eins og kostur er.“

Íbúar suðvesturhornsins þurfa þó allra næstu daga að búa við áframhaldandi éljagang meðan íbúar fyrir norðan og austan fá veðurblíðu, miðað við lýsingu veðurfræðingsins á skammtímaspánni:

„Suðvestanáttin verður ríkjandi hjá okkur næstu daga. Éljagangur á vestanverðu landinu og getur náð austur með norðvesturlandi og eins með suðausturströndinni, en oftast er bjart og fallegt veður á Norðaustur- og Austurlandi í suðvestanáttinni. Hiti ætti víðast hvar að komast í 1 til 4 stig að deginum á láglendi en reikna má með að hitinn falli undir frostmark að næturlagi.“

Um næstu helgi er hins vegar spáð hlýnandi veðri, það gæti verið orðið frostlaust í öllum byggðum landsins á sunnudag og dagana eftir helgi.

Á veðurvefnum Bliku er einnig fjallað um þau umskipti sem eru í vændum í veðrinu:

„Háþrýstisvæði byggist upp fyrir sunnan land, það „klippir á" aðstreymið úr vestri. Í staðinn beinist til okkar mun mildara loft ættað úr suðri og suðvestri.

Það sem meira er að með háþrýstisvæðinu er tiltölulega þurrt, sennilega háskýjabreiður með sólarglennum á laugardag og sunnudag. Ef nær að blása norður yfir fjöllin berst milda loftið niður í byggðir og tekur til við að bræða snjófyrningarnar fyrir vestan- og norðan.“

Þetta gæti þó orðið skammgóður vermir:

„Langtímaspár benda hins vegar til þess að þessi umskipti séu ekki varanleg og norðanskot gæti fylgt í kjölfarið í næstu viku,“ segir á Bliku.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×